Góður félagsskapur. A-NS
Norður | |
♠K103 | |
♥ÁG10852 | |
♦84 | |
♣108 |
Vestur | Austur |
♠Á72 | ♠DG98654 |
♥974 | ♥D3 |
♦K10762 | ♦95 |
♣K2 | ♣G6 |
Suður | |
♠ – | |
♥K6 | |
♦ÁDG3 | |
♣ÁD97543 |
Suður spilar 6♣.
„Ég átti að vinna þetta.“ Einn af keppendum Reykjavíkurmótsins sló sér svekktur lær eftir að hafa farið niður á 6♣. En hann var í góðum félagsskap, því slemma vannst hvergi þar sem hún var sögð. Þeir sem spiluðu 5♣ rúlluðu hins vegar upp tólf slögum.
Á umræddu borði opnaði austur á 3♠, suður doblaði, vestur sagði 4♠, norður doblaði og suður stökk í slemmu. Spaðaásinn út.
Vinningsleiðin felst í því að spila trompinu heiman frá og láta á móti sér svíningu í hjarta. Spila sem sagt strax ♣Á og meira laufi, toppa svo hjartað. Þessi spilamennska sýnist þó vera á móti líkum, því auðvitað er ♥D líklegri til að vera þriðja í vestur en önnur í austur. Þess vegna fóru menn almennt niður.
En umræddur sagnhafi sá lengra í spilinu – eftir á: „Líkleg skipting austurs er 7=2=2=2 og því gæti ♦K komið annar ef ♥D fellur ekki.“