Lasse Svan Hansen
Lasse Svan Hansen
Lasse Svan Hansen, hægri hornamaður heimsmeistaraliðs Danmerkur, er orðinn einn sigursælasti handknattleiksmaður sögunnar eftir sigur danska landsliðsins á HM í gær.

Lasse Svan Hansen, hægri hornamaður heimsmeistaraliðs Danmerkur, er orðinn einn sigursælasti handknattleiksmaður sögunnar eftir sigur danska landsliðsins á HM í gær. Svan hefur orðið heims,- ólympíu- og Evópumeistari með danska landsliðinu, Evrópumeistari með Flensburg, þýskur meistari og bikarmeistari með sama liði auk þess að verða danskur meistari og bikarmeistari með GOG áður en hann hélt til Flensburg. Hann hefur unnið alla titla sem hægt er vinna með þeim lands- og félagsliðum sem hann hefur leikið með. iben@mbl.is