Rakel Hönnudóttir
Rakel Hönnudóttir — Ljósmynd/Reading.fawsl.com
Rakel Hönnudóttir lék í gær fyrsta leik sinn fyrir enska knattspyrnufélagið Reading er hún kom inn á sem varamaður á 85. mínútu í 3:0-tapi fyrir Arsenal á heimavelli í ensku úrvalsdeildinni.

Rakel Hönnudóttir lék í gær fyrsta leik sinn fyrir enska knattspyrnufélagið Reading er hún kom inn á sem varamaður á 85. mínútu í 3:0-tapi fyrir Arsenal á heimavelli í ensku úrvalsdeildinni.

Rakel gekk í raðir Reading fyrir helgi og fór beint í leikmannahópinn í gær og byrjaði Íslendingurinn á varamannabekk Reading í leiknum.

Arsenal er aðeins einu stigi frá toppliði Manchester City og á leik til góða. Reading er í fimmta sæti með 18 stig, 16 stigum frá toppliðinu. sport@mbl.is