Hallgeirsstaðasystkinin Efri röð frá vinstri: Haraldur 74 ára, Elís Jökull 81 árs, Benedikt 65 ára, Einar Orri 79 ára, Eiríkur Helgi 69 ára, Dvalinn 78 ára, Björgvin Ómar 60 ára og Þórarinn Valgeir 67 ára. Fremri röð frá vinstri: Auðbjörg Halldís 70 ára, Ásta Haralda 76 ára, Stefanía 83 ára, Hulda 59 ára, Alda 66 ára og Gyða 73 ára.
Hallgeirsstaðasystkinin Efri röð frá vinstri: Haraldur 74 ára, Elís Jökull 81 árs, Benedikt 65 ára, Einar Orri 79 ára, Eiríkur Helgi 69 ára, Dvalinn 78 ára, Björgvin Ómar 60 ára og Þórarinn Valgeir 67 ára. Fremri röð frá vinstri: Auðbjörg Halldís 70 ára, Ásta Haralda 76 ára, Stefanía 83 ára, Hulda 59 ára, Alda 66 ára og Gyða 73 ára. — Ljósmynd/Leifur Gauti Sigurðsson
Steinþór Guðbjartsson steinthor@mbl.is Systkinin frá Hallgeirsstöðum í Jökulsárhlíð urðu samtals 1.000 ára í annað sinn 13. janúar síðastliðinn. Þau urðu fyrst samtals 1.000 ára 18. mars 2014.

Steinþór Guðbjartsson

steinthor@mbl.is

Systkinin frá Hallgeirsstöðum í Jökulsárhlíð urðu samtals 1.000 ára í annað sinn 13. janúar síðastliðinn. Þau urðu fyrst samtals 1.000 ára 18. mars 2014. Þá voru 15 af 16 systkinum lifandi, en annað systkini féll frá í desember sem leið.

Hjónin Lára Stefánsdóttir og Hrafnkell Aðalsteinn Elíasson, bændur á Hallgeirsstöðum til 1980, þar sem þau voru alla tíð með sauðfé og mjólkurframleiðslu til þess að framfleyta sér og barnahópnum, eignuðust 16 börn, sex stúlkur og 10 drengi, á árunum 1936 til 1959. Hrafnkell fæddist á Aðalbóli í Hrafnkelsdal 1906 en Lára fæddist að Háreksstöðum í Jökuldalsheiði 1918. Hann lést 1989 en hún 2009. Afkomendur þeirra hittast jafnan á afmælisdegi Láru, 20. janúar, bæði á Egilsstöðum og í Reykjavík, en hún hefði orðið 101 árs í ár.

Benedikt Hrafnkelsson, sem býr á jörðinni og rekur Hótel Svartaskóg, er fæddur og uppalinn á Hallgeirsstöðum fyrir utan níu ár á áttunda áratug liðinnar aldar, þegar hann átti heima á Egilsstöðum. „Þegar aldurinn færðist yfir foreldra okkar og þeir voru orðnir útslitnir af þrældómi við búskap og barnauppeldi báðu þeir mig og konu mína um að koma og taka við búinu, en þeir fluttu til Egilsstaða,“ segir hann.

Margt um manninn

Fyrr í mánuðinum kom fram í Morgunblaðinu að fjórir núlifandi systkinahópar hefðu náð 1.000 ára samanlögðum aldri, en systkinin frá Hallgeirsstöðum eru fyrst til þess að ná 1.000 árum saman í tvígang. „Það er ekki fagnaðarefni að vera orðinn svona gamall,“ segir Benedikt, sem er þó á besta aldri, þriðji yngstur systkinanna. Bendir samt á að miðað við fjölda þeirra ætti samanlagður aldur ekki að koma á óvart.

Benedikt segir að gaman hafi verið að alast upp í fjölmenninu á Hallgeirsstöðum. Þar hafi jafnframt verið heimavistarfarskóli og því hafi önnur börn úr sveitinni reglulega bæst við barnahópinn sem fyrir var. „Það var líka alltaf nóg að gera í búskapnum og um leið og við gátum gert gagn vorum við látin hjálpa til,“ rifjar hann upp. „Búið var stórt og flest verk handunnin enda tæknin af skornum skammti á þeim tíma.“

Einn bróðirinn, Auðun Hlíðar, bjó í Reykjavík og Sigþór á Vopnafirði, en báðir eru látnir. Eftirlifandi systkini búa öll á Austurlandi nema einn bróðir á Akureyri. Beinir afkomendur Láru og Hrafnkels eru 157 og 179 með bónusafkomendum. Börnin 16, 42 barnabörn og þrjú bónusbarnabörn, 88 barnabarnabörn og 17 að auki og 11 barnabarnabarnabörn og tvö að auki. Og þeim fer hratt fjölgandi, að sögn Benedikts.