Matvælastofnun gerði athugasemdir á grundvelli laga um velferð dýra vegna sauðfjár í þjóðgarðinum á Þingvöllum.
Ásta Stefánsdóttir, sveitarstjóri Bláskógabyggðar, segir að ábendingin hafi verið vegna sauðfjár á lausagangi.
„Matvælastofnun bárust sem sagt ábendingar um að sauðfé sé á lausagangi í þjóðgarðinum og það var farið fram á að það yrði handsamað og því komið rétta leið.“
Ásta segir að brugðist verði við ábendingunni hið snarasta.
„Fjallskilanefnd og yfirmenn þjóðgarðs munu funda í vikunni og skipuleggja handsömun á þessum rollum.“
Aðspurð segir hún ekki óvenjulegt að sauðfé verði eftir í þjóðgarðinum. „Það gerist öðru hvoru. Það er smalað þarna reglulega en eitthvað hefur orðið eftir.“ ragnhildur@mbl.is