Danshöfundurinn Anna Kolfinna Kuran fyllti Mengi af konum föstudagskvöldið síðastliðið með nýjasta gjörningi sínum, „Konulandslag“.
Danshöfundurinn Anna Kolfinna Kuran fyllti Mengi af konum föstudagskvöldið síðastliðið með nýjasta gjörningi sínum, „Konulandslag“. Er hann hluti af samnefndu langtímarannsóknarverkefni Önnu en í því skoðar hún, skapar og ber kennsl á hin ýmsu landslög kvenna í samfélaginu, eins og hún orðar það, og vinnur með hugmyndir um rými og kvenlíkamann.