Alls voru þrjú heimsmet sett í kraflyftingakeppni Reykjavíkurleikanna sem fram fór í Laugardalshöllinni í gær.
Alls voru þrjú heimsmet sett í kraflyftingakeppni Reykjavíkurleikanna sem fram fór í Laugardalshöllinni í gær.
Joy Nnamani frá Bretlandi sigraði í kvennaflokki með 831 stig en hún setti heimsmet í réttstöðulyftu í -57 kg flokki á mótinu þegar hún lyfti 203 kg. Hún setti einnig heimsmet í réttstöðulyftu á leikunum 2017.
Pólverjinn Krzysztof Wierzbicki sigraði í karlaflokki með samtals 831 stig. Hann setti tvö heimsmet í -105 kg flokki, í réttstöðulyftu þegar hann lyfti 390,5 kg og samanlagt 895,5 kg.