Margrét Jóhannsdóttir
Margrét Jóhannsdóttir
Badmintonkeppni Reykjavíkurleikanna lauk í gær. Tvö íslensk lið spiluðu í úrslitum, Margrét Jóhannsdóttir og Kristófer Darri Finnsson í tvenndarleik og Sigríður Árnadóttir og Margrét Jóhannsdóttir í tvíliðaleik kvenna.

Badmintonkeppni Reykjavíkurleikanna lauk í gær. Tvö íslensk lið spiluðu í úrslitum, Margrét Jóhannsdóttir og Kristófer Darri Finnsson í tvenndarleik og Sigríður Árnadóttir og Margrét Jóhannsdóttir í tvíliðaleik kvenna. Margrét og Kristófer höfðu sigur í tvenndarleiknum en Sigríður og Margrét urðu að játa sig sigraðar í tvíliðaleik kvenna.

Margrét og Kristófer sigruðu nokkuð örugglega í tveimur lotum ungt og efnilegt enskt par, Annie Lado og Ethan Van Leeuwen.