Bradley Cooper söng á tónleikum Lady Gaga.
Bradley Cooper söng á tónleikum Lady Gaga. — AFP
Söngkonan Lady Gaga kom tónleikagestum sínum heldur betur á óvart í Las Vegas um liðna helgi. Þegar komið var að laginu „Shallow“ úr kvikmyndinni A Star Is Born birtist mótleikari hennar, Bradley Cooper, á sviðinu.
Söngkonan Lady Gaga kom tónleikagestum sínum heldur betur á óvart í Las Vegas um liðna helgi. Þegar komið var að laginu „Shallow“ úr kvikmyndinni A Star Is Born birtist mótleikari hennar, Bradley Cooper, á sviðinu. Það ætlaði allt um koll að keyra þegar þau sungu saman lagið, sem notið hefur gríðarlegra vinsælda í kjölfar myndarinnar, en það var valið lag ársins á Golden Globe hátíðinni fyrir skömmu. Lagið er einnig tilnefnt til Óskarsverðlauna og þar eru Gaga og Cooper einnig tilnefnd fyrir leik sinn í myndinni.