Nakin og samþykkt Um einstaka leiksýningu var að ræða. Leikritið fjallaði um tvö systkini sem þurfa að afklæðast til þess að skilja hvort annað og ná saman um samfélagsleg málefni.
Nakin og samþykkt Um einstaka leiksýningu var að ræða. Leikritið fjallaði um tvö systkini sem þurfa að afklæðast til þess að skilja hvort annað og ná saman um samfélagsleg málefni.
[ Smellið til að sjá stærri mynd ]
Samtök strípalinga í París hafa staðið fyrir ýmsum viðburðum á síðustu misserum. Í janúarmánuði var boðið upp á einstaka leiksýningu þar sem allir áhorfendur voru án klæða.

Magnús Heimir Jónasson

mhj@mbl.is

Afar sérstök leiksýning fór fram í Parísarborg fyrr í mánuðinum þar sem allir gestir sýningarinnar voru naktir. Oft kemur það fyrir að leikarar á hvíta tjaldinu eða á stóra sviðinu eru án klæða en á þessari sýningu voru áhorfendur það líka.

„Það er engin betri leið til að hlæja en að hlæja nakinn,“ segir Cedric Amato, formaður Samtaka strípalinga í París.

Um einstakan viðburð var að ræða. Mun þetta hafa verið fyrsta nektarleiksýningin í stóru leikhúsi í frönsku höfuðborginni. Sýningin fjallaði um systkini sem eru á öndverðum meiði í þjóðfélagsmálum. Framleiðendur sýningarinnar kröfðust þess að til að sjá sýninguna yrðu áhorfendur að fara úr öllum fötum. Þá var þess einnig krafist að allir gestir kæmu með eigið handklæði af hreinlætisástæðum. Gestir gátu þó borgað aukalega fyrir sérstaklega klædd sæti.

Nakin og samþykkt

Sýningin bar heitið „Nu et approuvé“ sem útleggst nakin og samþykkt á íslensku. Mun þetta vera orðaleikur með franskan frasa sem algengt er að Frakkar noti til að skrifa undir opinber skjöl; „lesið og samþykkt“.

Að losa eigin grímu og klæði

Systkinin í leikritinu sjá hvort um sig hitt ekki í réttu ljósi og skilja ekki afstöðu hvort annars til ýmissa málefna. Þau þurfa að losa sig við eigin grímu til að skilja hvort annað betur. Ein leið sem aðstoðar þau í þessu er að fara úr öllum fötum.

Þrátt fyrir að það sé afar kalt í París í janúarmánuði, og leikhúsið heiti því kaldhæðnislega nafni Íshöllin, voru naktir gestir sýningarinnar yfir sig hrifnir. „Ég virkilega naut mín,“ segir miðaldra kona í samtali við fréttaveituna AFP .

Amato segir sýninguna afar merkilega þar sem hún gefi okkur tækifæri til að ræða lífsstíl okkar og þarfir.

„Við þurfum að brjóta samfélagsleg viðmið til að vera við sjálf á stöðum sem þessum og hafa gaman,“ segir hann.

Samtök strípalinga í París hafa þrýst á um að lífsstíll þeirra verði samfélagslega viðurkenndur. Ýmsir viðburðir hafa verið haldnir fyrir nakta gesti; m.a. uppistandskvöld og heimsóknir á söfn. Þá hefur einnig verið opnað „nakið“ svæði í stærsta almenningsgarði Parísarborgar. Þar geta allir sem vilja spókað sig á adams- og evuklæðunum. Þó má ætla að fáir klæði sig úr öllum fötunum í garðinum í janúar.

„Nakta“ veitingastaðnum lokað

Strípalingar í Parísarborg hafa hins vegar ekki átt sjö dagana sæla þar sem eini veitingastaðurinn fyrir nakta í borginni, O'Naturel , tilkynnti að hann myndi loka í næsta mánuði. Matargestir voru einfaldlega ekki nógu margir til að halda staðnum gangandi.

Staðurinn var starfræktur í rúmt ár og fékk gríðarmikla athygli þegar hann var opnaður. Öll föt voru skilin eftir í fatahenginu í anddyrinu áður en gengið var inn. Þá voru allir símar bannaðir á staðnum til að koma í veg fyrir að gestir gætu laumast til að taka myndir af öðrum gestum. Gestir fengu inniskó við komuna á staðinn en konur, sem voru um 40% viðskiptavina, máttu vera í hælaskóm. Ólíkt nektarstaðnum The Bunyadi í London var þjónustufólk í fötum. „Hlutverk okkar er að leyfa fólki að njóta sín,“ segir Stephane í samtali við AFP og benti jafnframt á að lög í Frakklandi krefðust þess að þjónustufólk væri í fötum.

Gestum staðarins er alltaf vísað beint til sætis til að koma í veg fyrir að fólki líði óþægilega með að ganga um fyrir framan aðra gesti. Þá er sett nýtt áklæði á alla stóla veitingastaðarins fyrir nýja gesti.

„Það er nú eða aldrei“

Þeir sem klæddu sig úr og gæddu sér á mat O'Naturel gáfu staðnum góð meðmæli. Um er að ræða fínan franskan veitingastað þar sem gestir gátu fengið sér ostrur, snigla og foie gras. Tvíburarnir Mike og Stephane Saada sögðust tilneyddir til að loka staðnum áður en kæmi til fjárhagslegra vandræða.

„Það er nú eða aldrei,“ segir í auglýsingu staðarins um þessar mundir, í von um að hvetja forvitna gesti til að prófa „nakta“ matarupplifun. „Við treystum á þig til að styðja okkur,“ rita tvíburarnir á Facebook ásamt því að þakka öllum sem tóku þátt í ævintýrinu með þeim.

„Við munum einungis muna eftir góðum stundum og því frábæra fólki sem við kynntumst,“ segja þeir.

Staðnum verður lokað fyrir fullt og allt 16. febrúar næstkomandi. Þrátt fyrir að strípalingar í París séu afar leiðir yfir lokuninni segir Amato, formaður Samtaka strípalinga, að staðurinn hafi einfaldlega verið á undan sinni samtíð.