Stefán E. Stefánsson ses@mbl.is Kauptilboð sem Kólfur hf. hefur gert í ríflega 19% hlut félagsins Hvatningar í Bláa lóninu, gengur út frá því að heildarvirði fyrirtækisins nemi 50 milljörðum króna.

Stefán E. Stefánsson

ses@mbl.is

Kauptilboð sem Kólfur hf. hefur gert í ríflega 19% hlut félagsins Hvatningar í Bláa lóninu, gengur út frá því að heildarvirði fyrirtækisins nemi 50 milljörðum króna. Þetta herma heimildir ViðskiptaMoggans en þar er í dag greint frá því að stærstu eigendur fyrrnefnds hlutar í Bláa lóninu hafi ekki enn tekið endanlega afstöðu til þess hvort þeir gangi inn í kauptilboð Kólfs hf. Frestur sem eigendurnir hafa, en í þeim hópi eru nokkrir af stærstu lífeyrissjóðum landsins, rennur út nú í lok dags. Fyrrnefndan eignarhlut eiga þessir aðilar í gegnum fjárfestingarsjóðinn Horn II sem aftur er eigandi að 49,5% hlut í félaginu Hvatningu sem á ríflega 39% hlut í Bláa lóninu. Skv. ársreikningi Horns II fyrir árið 2017 var Bláa lónið metið á ríflega 40 milljarða króna. Á rúmu ári hefur félagið því vaxið að verðgildi um nærri 10 milljarða króna. Sé miðað við fyrrnefnt verðmat, sem liggur til grundvallar kauptilboði Kólfs í hlutinn í Hvatningu, sést að Bláa lónið er orðið nærri jafn verðmætt og stærsta ferðaþjónustufyrirtæki landsins, Icelandair Group. Við lokun markaða í gær nam markaðsvirði þess 54 milljörðum króna.