26 stiga útspil.

26 stiga útspil. A-NS

Norður
G64
Á762
K84
1083

Vestur Austur
10 D3
9854 KDG10
Á653 10
G964 ÁKD752

Suður
ÁK98752
3
DG972
--

Suður spilar 6 doblaða.

Við erum stödd í æfingaleik Hollendinga og Norðmanna á BBO. Austur opnar á Standard-laufi og suður stekkur í 4 – á hættu gegn utan. Pass og pass til austurs. Á að gefast upp, þar og þá?

Nei, nei, nei. Hvorki Tor Eivind Grude né Bob Drijver létu uppgjöf hvarfla að sér. En Grude valdi vafasama sögn – hann doblaði. Líklega var einhver úttektarhugsun að baki doblinu, en makker hans, Tor Bakke, var ekki á sömu línu og sagði pass. Lauf út og tólf slagir.

Hinum megin sagði Drijver einfaldlega 5 við 4. Þá tók við barátta upp í 6. Allan Livgaard í suður sagði 5, Bart Nab í vestur 6 og Terje Aa í norður 6. Nab doblaði, lagði niður tígulás og gaf makker stungu! Einn niður.

Slemman vinnst auðvitað með öðru útspili og þá hefðu Hollendingar tapað 10 stigum (impum) á spilinu í stað þess að vinna 16.