Adam Levine er forsprakki Maroon 5.
Adam Levine er forsprakki Maroon 5.
Úrslitaleikur Ofurskálarinnar, Super Bowl, fer fram næstkomandi sunnudag. Poppsveitin Maroon 5 treður upp í hálfleik. Hefðbundinn blaðamannafundur með hálfleiks- listamönnunum hefur nú verið blásinn af.
Úrslitaleikur Ofurskálarinnar, Super Bowl, fer fram næstkomandi sunnudag. Poppsveitin Maroon 5 treður upp í hálfleik. Hefðbundinn blaðamannafundur með hálfleiks- listamönnunum hefur nú verið blásinn af. Í tilkynningu frá forsvarsmönnum NFL-deildarinnar segir að Maroon 5 muni láta tónlistina tala. Fjölmargir hafa skrifað nafn sitt á undirskriftalista sem hvetur hljómsveitina til að koma ekki fram og styðja með því NFL-leikmenn sem mótmælt hafa kynþáttamisrétti með því á krjúpa á kné þegar þjóðsöngur Bandaríkjanna er leikinn.