Sögufrægt Húsið var byggt 1916.
Sögufrægt Húsið var byggt 1916. — Morgunblaðið/Kristinn Magnússon
Sjóður í rekstri Gamma hefur sett Herkastalann, Kirkjustræti 2, á sölu. Fjárfestar keyptu húsið árið 2016 með hótelrekstur í huga. Þau áform voru hins vegar sett til hliðar.

Sjóður í rekstri Gamma hefur sett Herkastalann, Kirkjustræti 2, á sölu. Fjárfestar keyptu húsið árið 2016 með hótelrekstur í huga. Þau áform voru hins vegar sett til hliðar.

Samkvæmt kaupsamningi sem undirritaður var í janúar 2016 var kaupverðið 630 milljónir. Það eru um 680 milljónir á verðlagi nú.

Valdimar Ármann, forstjóri Gamma, segir eignina bjóða upp á margvíslega möguleika.

„Í húsinu hefur verið rekin gisting í yfir 100 ár og því liggur beinast við að húsið hýsi einhvers konar gistirekstur. Þá væri mögulegt að nota húsið undir skrifstofur og til dæmis setja upp skrifstofuhótel.“ 4