Dýrafjarðargöng Vel gengur hjá gangamönnum þessar vikurnar.
Dýrafjarðargöng Vel gengur hjá gangamönnum þessar vikurnar. — Morgunblaðið/Sigurður Bogi
Dýrafjarðargöng lengdust um 111 metra í síðustu viku. Það er það lengsta sem gangamenn hafa komist á einni viku. Vegalengdin er með því besta sem gerist, jafnvel Íslandsmet að mati framkvæmdaeftirlits Dýrafjarðarganga. Verktakarnir Metrostav a.s.

Dýrafjarðargöng lengdust um 111 metra í síðustu viku. Það er það lengsta sem gangamenn hafa komist á einni viku. Vegalengdin er með því besta sem gerist, jafnvel Íslandsmet að mati framkvæmdaeftirlits Dýrafjarðarganga.

Verktakarnir Metrostav a.s. og Suðurverk hf. grafa þessa mánuðina úr Dýrafirði. Í lok síðustu viku var lengd ganganna þeim megin orðin tæpir 797 metrar og samanlögð lengd ganganna 4.454 metrar. Eru þá aðeins eftir 847 metrar sem eru 16% af heildarlengd ganganna.

Framundan er næstsíðasta útskotið og verður því ekki slegið neitt met í þessari viku. Framkvæmdaeftirlitið útilokar þó ekki að ný met verði sett á komandi vikum, eftir að útskotsvinnu lýkur.

Stytting um 27 kílómetra

Dýrafjarðargöng liggja á milli Dýrafjarðar og Arnarfjarðar á Vestfjörðum, frá Mjólkárvirkjun í Arnarfirði að Dýrafjarðarbrú. Göngin eru um 5,6 km löng en auk þess þarf að leggja um 8 kílómetra af nýjum vegi. Þegar göngin verða tekin í notkun styttist Vestfjarðavegur, á milli suður- og norðurhluta Vestfjarða um 27 kílómetra. Þá þarf ekki lengur að fara yfir gamlan og brattan veg um Hrafnseyrarheiði sem er lokaður yfir háveturinn. helgi@mbl.is