[ Smellið til að sjá stærri mynd ]
Nú er ástæða fyrir aðdáendur kanadísku söngdívunnar Celine Dion að gleðjast því kvikmynd, byggð á ævi hennar, er í vinnslu. Tökur munu hefjast í næsta mánuði og er settur útgáfudagur 2. desember árið 2020.
Nú er ástæða fyrir aðdáendur kanadísku söngdívunnar Celine Dion að gleðjast því kvikmynd, byggð á ævi hennar, er í vinnslu. Tökur munu hefjast í næsta mánuði og er settur útgáfudagur 2. desember árið 2020. Mun myndin bera heitið The Power of Love og hefur Dion gefið leyfi fyrir að lög hennar verði notuð í henni. Leikstjórn verður í höndum frönsku söng- og leikkonunnar Valérie Lemercier sem mun einnig fara með hlutverk Aline, sem innblásin er af Dion. Tökur munu fara fram í Frakklandi, Kanada, Las Vegas og Spáni.