Lilja Alfreðsdóttir
Lilja Alfreðsdóttir
Reglugerð sem heimilar greiðslu sýningarstyrkja til framleiðenda kvikmynda á íslensku hefur verið samþykkt og undirrituð af mennta- og menningarmálaráðherra, að því er fram kemur á vef stjórnarráðs Íslands.

Reglugerð sem heimilar greiðslu sýningarstyrkja til framleiðenda kvikmynda á íslensku hefur verið samþykkt og undirrituð af mennta- og menningarmálaráðherra, að því er fram kemur á vef stjórnarráðs Íslands. Þar segir að heimilt verði að að veita sérstaka sýningarstyrki vegna sýninga á kvikmyndum á íslensku í kvikmyndahúsum hér á landi í hlutfalli við heildarandvirði seldra aðgöngumiða að sýningum á viðkomandi kvikmynd.

„Íslenskar kvikmyndir skipa mikilvægan sess í menningu okkar og þessi nýja reglugerð fylgir eftir þörfum breytingum á kvikmyndalögum sem samþykktar voru síðasta vor,“ er haft eftir Lilju Alfreðsdóttur mennta- og menningarmálaráðherra, og að heimilt sé að styrkirnir nemi allt að 20% af heildarsölutekjum kvikmynda á íslensku eftir því sem fjárveitingar leyfi. Kvikmyndamiðstöð auglýsir eftir umsóknum um sýningarstyrki.