Djass Katrín Halldóra Sigurðardóttir á Jazzhátíð Reykjavíkur í fyrra.
Djass Katrín Halldóra Sigurðardóttir á Jazzhátíð Reykjavíkur í fyrra.
Úthlutað hefur verið úr Tónlistarsjóði fyrir fyrra tímabil ársins, 1. janúar til 1. júlí, en hlutverk sjóðsins er að efla íslenska tónlist og stuðla að kynningu á íslenskum tónlistarmönnum og tónsköpun þeirra.

132 umsóknir bárust frá ólíkum greinum tónlistar en til úthlutunar úr sjóðnum í ár eru 69 milljónir króna, þar af 21 milljón í föstum samningum til ársins 2020. Í fyrri úthlutun eru því 24 milljónir króna og styrkir veittir til 55 verkefna að upphæð 20 millj. kr., auk þess sem tveir þriggja ára samstarfssamningar eru framlengdir, við Nordic affect uppá 1,5 milljónir og Jazzhátíð Reykjavíkur upp á 2,5 milljónir, eins og segir í tilkynningu. Af öðrum sem hljóta styrki má nefna Múlann djassklúbb og Alþjóðlegu tónlistarakademíuna í Hörpu.