Velkominn. V-NS
Norður | |
♠87542 | |
♥1042 | |
♦653 | |
♣G3 |
Vestur | Austur |
♠10 | ♠ÁD96 |
♥ÁK76 | ♥85 |
♦G872 | ♦D10 |
♣Á982 | ♣D10765 |
Suður | |
♠KG3 | |
♥DG93 | |
♦ÁK94 | |
♣K4 |
Suður spilar 1G doblað.
Dobl! Zia sveiflaði rauða refsimiðanum með tilþrifum: „Welcome to Reykjavík.“ Það var kalt úti, en hlýtt og notalegt í Hörpu og fagurt útsýni yfir höfnina. Tvímenningur bridshátíðar nýhafinn og Zia í góðu skapi.
Allir við borðið vissu að norður átti bágt. David Gold í vestur opnaði á tígli, norður sagði pass með laufgosann sinn beinfrosinn og Zia í austur svaraði á spaða. Suður kom inn á grandi – pass, pass og dobl hjá Zia. Lauf út.
„Þú átt eitt gott spil,“ sagði Zia þegar norður lagði upp dýrðina, „og það er ekki laufgosinn.“ Rétt metið hjá hinum lífsreynda heimshornaflakkara. Hjartatían bjargaði því sem bjargað varð. Suður fékk fyrsta slaginn á laufkóng og spilaði hjartadrottningu, sem Gold dúkkaði eftir langa yfirlegu. Vildi ekki hleypa sagnhafa inn í borð á hjartatíu til að spila spaða. Sú vandaða vörn tryggði AV feitan 500-kall og 88% skor.