Halldór Harri Kristjánsson
Halldór Harri Kristjánsson
Halldór Harri Kristjánsson hefur verið ráðinn þjálfari kvennaliðs HK í handknattleik frá og með komandi sumri, en hann hefur skrifað undir tveggja ára samning við Kópavogsfélagið. Hann tekur við af Vilhelm Gauta Bergsveinssyni.

Halldór Harri Kristjánsson hefur verið ráðinn þjálfari kvennaliðs HK í handknattleik frá og með komandi sumri, en hann hefur skrifað undir tveggja ára samning við Kópavogsfélagið. Hann tekur við af Vilhelm Gauta Bergsveinssyni. Halldór Harri þjálfaði áður kvennalið Stjörnunnar og Hauka, sem og norska liðið Molde, en hann hefur í vetur þjálfað hjá HK.

HK er í sjöunda sæti af átta liðum í Olísdeild kvenna þegar þremur umferðum er ólokið. vs@mbl.is