Utangátta. S-AV
Norður | |
♠K94 | |
♥ÁKDG | |
♦9865 | |
♣K4 |
Vestur | Austur |
♠10853 | ♠D |
♥1052 | ♥9874 |
♦G1074 | ♦2 |
♣65 | ♣DG109832 |
Suður | |
♠ÁG762 | |
♥63 | |
♦ÁKD3 | |
♣Á7 |
Suður spilar 7G.
Spaðaliturinn er eins og klipptur út úr kennslubók um öryggisspilamennsku. Segjum sem svo að suður spili 6♠ í sveitakeppni og megi því gefa slag á spaðalitinn. Hver er besta íferðin?
Jú, jú. Maður leggur fyrst niður ásinn og spilar svo litlu á níuna ef báðir verjendur fylgja smátt. Þannig má ráða við ♠D10xx í vestur. Og auðvitað í austur líka, því ef vestur reynist eiga einspil er farið upp með kóng og spilað að gosanum.
En þessar pælingar eru svolítið utangátta, því spilið kom upp í Íslandsmótinu í tvímenningi um helgina og menn hirða lítt um öryggið í því keppnisformi. Einn vann þó 7♠ (væntanlega með því að taka fyrst á trompásinn) og annar vann raunar 7♦, sem er ekkert minna en kraftaverk (eða bókhaldsvilla). Þrír spiluðu 7G og unnu á heiðarlegan hátt með þvingun á vestur í hvössu litunum.