Verkalýðsmál Magnús M. Norðdahl á stjórnarfundi hjá ILO í vikunni.
Verkalýðsmál Magnús M. Norðdahl á stjórnarfundi hjá ILO í vikunni. — Ljósmynd/ASÍ
Magnús M. Norðdahl, lögfræðingur ASÍ, hefur verið kjörinn í stjórn Alþjóða vinnumálastofnunarinnar (ILO), fyrstur Íslendinga.

Magnús M. Norðdahl, lögfræðingur ASÍ, hefur verið kjörinn í stjórn Alþjóða vinnumálastofnunarinnar (ILO), fyrstur Íslendinga. Magnús var tilnefndur af norræna verkalýðssambandinu, NFS, studdur af alþjóðasambandi verkafólks, ITUC, og kjörinn af fulltrúum alþjóðlegrar verkalýðshreyfingar til þessa embættis, segir í frétt frá ASÍ.

Magnús hefur verið fulltrúi íslenskrar verkalýðshreyfingar á þingum ILO síðastliðin 20 ár og tekið þátt í fjölmörgum samninganefndum á vettvangi stofnunarinnar. Hann leiddi meðal annars slíka nefnd fyrir hönd verkafólks á árinu 2016.

ILO var stofnuð 1919 á grundvelli Versalasamninganna og varð við stofnun Sameinuðu þjóðanna fyrsta sérstaka stofnun þeirra. Ísland hefur átt aðild að Alþjóðavinnumálastofnuninni síðan 19. október 1945.

Hlutverk ILO er annars vegar setning alþjóðalaga á sviði vinnuréttar og félagsmála og eftirlit með framkvæmd þeirra laga. Hins vegar snýr hlutverk þess að aðstoð við aðildarríki stofnunarinnar við framkvæmd þessara laga. Umfangsmikið eftirlitskerfi er rekið af stofnuninni og sérstök sjálfstæð níu manna nefnd, Félagafrelsisnefndin, starfar til þess að taka við og úrskurða kærur um brot gegn alþjóðlega viðurkenndu og vernduðu félagafrelsi og kjarasamningsrétti.

Stjórn ILO kaus Magnús hinn 25. mars, samkvæmt tilnefningu verkafólks, sem aðalfulltrúa í þessa nefnd en Ísland hefur aldrei áður átt fulltrúa í henni.