Við Leifsstöð Mikil óvissa hefur verið í fluginu síðustu mánuði. Tvísýnt hefur verið um framtíð WOW air.
Við Leifsstöð Mikil óvissa hefur verið í fluginu síðustu mánuði. Tvísýnt hefur verið um framtíð WOW air. — Morgunblaðið/Eggert
[ Smellið til að sjá stærri mynd ]
Baksvið Baldur Arnarson baldura@mbl.is Óvissa í efnahagsmálum að undanförnu hefur dregið úr væntingum. Vísbendingar eru um að sú þróun hafi haft marktæk efnahagsleg áhrif. Meðal annars er ákvörðunum og þar með fjárfestingu slegið á frest.

Baksvið

Baldur Arnarson

baldura@mbl.is

Óvissa í efnahagsmálum að undanförnu hefur dregið úr væntingum. Vísbendingar eru um að sú þróun hafi haft marktæk efnahagsleg áhrif. Meðal annars er ákvörðunum og þar með fjárfestingu slegið á frest.

Þetta segir Halldór Þorkelsson, framkvæmdastjóri ráðgjafarfyrirtækisins Capacent á Íslandi.

Kemur þar m.a. til óvissa í kjaramálum og varðandi flugfélögin.

Capacent er með víðtæka starfsemi. Það sinnir einkamarkaði og opinberri starfsemi og veitir margskonar ráðgjöf.

„Við getum hikstalaust sagt að við finnum það víða í því sem við erum að fást við að sú óvissa sem verið hefur uppi, og þá einkum varðandi flugfélögin, hefur haft tilfinnanleg áhrif. Langvarandi óvissa er aldrei góð í rekstri. Þá til dæmis varðandi skipulag og hvernig fólk ætlar sér næstu skref inn í framtíðina. Minni óvissa er því ávallt æskileg.“

Ákvörðunum frekað frestað

– Hvernig hefur sú þróun birst á marktækan hátt?

„Heilt yfir hafa þessi mál orðið til þess að ákvörðunum er frekar frestað. Þannig að við höfum fundið fyrir því að það er ákveðin fælni við að taka stærri, skuldbindandi ákvarðanir vegna þessarar óvissu. Við höfum orðið vör við það,“ segir Halldór, sem telur þetta hafa haft markverð áhrif á fjárfestingu að undanförnu.

– Hvers vegna hafa væntingar svona mikil áhrif?

„Væntingar eru skrýtið fyrirbæri. Við getum stundum talað okkur inn í eitthvert ástand og markaðurinn tekur síðan allur undir það og til verður ástand sem leiðir af sér ákvarðanafælni. Hversu rökrétt það er hverju sinni er síðan umdeilanlegt. Stemningin verður til þess, að þeir sem standa frammi fyrir því að taka ákvarðanirnar finna að markaðurinn er ákvarðanafælinn og þá smitar það út frá sér.“

– Hvenær fóru áhrifin að birtast?

„Við fórum að greina áhrif þessa undir lok síðasta árs að einhverju leyti,“ segir Halldór.

Halda frekar að sér höndum

Ingólfur Bender, aðalhagfræðingur Samtaka iðnaðarins, tekur undir að væntingar hafi mikil áhrif.

„Fyrir það fyrsta er óvissa til þess fallin að fjárfestar og lánveitendur haldi frekar að sér höndum og geri hærri ávöxtunarkröfu. Þetta dregur úr umfangi og vexti fjárfestinga í hagkerfinu. Nokkuð hefur dregið úr atvinnuvegafjárfestingu undanfarið en aukning hefur verið í íbúðafjárfestingu og fjárfestingu hins opinbera,“ segir Ingólfur.

„Það myndi því hafa jákvæð áhrif að draga úr þessari óvissu. Langvarandi óvissa dregur úr vextinum. Þetta hefur líka áhrif á einkaneyslu heimila. Þau eru enda líklegri til að halda að sér höndum þegar óvissa er um framtíðartekjur og eignir. Þegar svona óvissuástand varir í lengri tíma getur það því haft neikvæð áhrif á hagvöxt,“ segir Ingólfur. Hann segir aðspurður ekki hægt að fullyrða að búið sé að verðleggja óvissu á eignamörkuðum.

„Óvissan er enda búin að vera svo sveiflukennd og síbreytileg frá degi til dags. Það er því ekki hægt að segja að búið sé að verðleggja hana. Ný tíðindi berast á hverjum degi, nánast.“

Hærra flugmiðaverð muni slá á eftirspurn

• Framkvæmdastjóri Analytica bendir á söguleg gögn Baldur Arnarson

baldura@mbl.is

Yngvi Harðarson, hagfræðingur og framkvæmdastjóri Analytica, segir vísbendingar um að verð flugmiða til og frá Íslandi muni hækka á næstunni. Afkoma Icelandair og einkum WOW air bendi enda til að verð flugmiða hafi verið ósjálfbært.

Yngvi segir greiningu Analytica benda til að hærra flugmiðaverð muni hafa marktæk áhrif á eftirspurn eftir ferðum til og frá Íslandi. Vegna þessara áhrifa sé útlit fyrir mun hægari vöxt ferðaþjónustu en á síðustu árum. Vegna vægis ferðaþjónustu í hagkerfinu sé líklegt að framlag greinarinnar til hagvaxtar á næstu árum verði því minna en verið hefur. Hagkerfið sé að fara í hægari vöxt.

Greining á millilandafluginu

Analytica vann í haust greiningu á áhrifum farmiðaverðs í flugi á eftirspurn í millilandaflugi.

Greiningin var birt sem viðauki með skýrslu starfshóps á vegum samgönguráðuneytisins um framtíð innanlandsflugs á Íslandi.

Nánar tiltekið mat Analytica áhrif flugfargjalda á eftirspurn eftir millilandaflugi um Keflavíkurflugvöll.

Fyrirtækið skoðaði áhrif flugfargjalda á fjölda skiptifarþega og fjölda erlendra ferðamanna sem heimsækja landið. Benti greiningin til að flugfargjöldin hefðu mikil áhrif á þessar tvær stærðir. Hækki flugfargjöldin fækkar skiptifarþegum og erlendum ferðamönnum og öfugt. Þetta gerist þó ekki samstundis heldur með nokkrum tímatöfum.

Telur Yngvi að áhrifin eigi eftir að koma fram.

Greiningin er rifjuð upp í tilefni af rekstrarerfiðleikum Icelandair og WOW air. Telur Yngvi tíðindi síðustu vikna renna stoðum undir að verð flugmiða hafi í einhverjum tilvikum verið undir kostnaðarverði.

Með hliðsjón af erfiðri stöðu flugfélaganna muni þau ekki lengur geta selt flugmiða á slíku verði. Með því verði Ísland dýrari áfangastaður.

Á móti komi að veiking krónu geti gert ferðalagið til Íslands hagstæðara í erlendri mynt en áður var. Það geti meðal annars stuðlað að því að eitthvað fleiri „tengifarþegar“ eigi hér stutta dvöl.

Yngvi bendir á að næmi erlendra farþega fyrir hækkandi farmiðaverði sé meira en hjá innlendum farþegum. Erlendir farþegar geti enda valið önnur flugfélög á leið yfir hafið. Innlendir farþegar séu hins vegar háðari íslensku flugfélögunum um samgöngur til og frá landinu.

Verðið skiptir miklu máli

Ingólfur Bender, aðalhagfræðingur Samtaka iðnaðarins, segir að flugfargjöld þurfi líklega að hækka. „Sérstaða ferðaþjónustunnar hér á landi í samanburði við slíka starfsemi í öðrum löndum er hvað hún reiðir sig mikið á flug. Sjálfstæð uppspretta fjölgunar ferðamanna hér á landi síðustu ár hefur því verið tíðari flugferðir til fleiri áfangastaða í heiminum. Hins vegar hefur það verið að ferðamenn geti flogið hingað á hagstæðu verði. Þessir þættir skipta miklu máli í ákvörðunum ferðamanna um að koma hingað. Vandræði flugfélaganna endurspegla það að hluta að flugfargjöld hafa verið mjög lág og samkeppnin mikil á flugmarkaði við félög með hagstæðari kostnaðaruppbyggingu en þau íslensku ... Flugfargjöld þurfa líklega að hækka en það myndi eflaust hafa neikvæð áhrif á ferðamannastrauminn hingað.“