Kannabisneysla getur margfaldað hættuna á geðrænum vandamálum

Færst hefur í vöxt að fólk hafi þurft að leita sér hjálpar vegna kannabisneyslu á Norðurlöndunum á undanförnum tveimur áratugum. Þetta kemur fram í nýrri skýrslu Norræna velferðarráðsins um kannabisneyslu og meðferðir við henni á Norðurlöndum. Samkvæmt skýrslunni er neyslan mest í Danmörku og Finnland í öðru sæti.

Jákvætt við skýrsluna er að kannabisneysla á Íslandi og í Noregi og Svíþjóð er með því minnsta sem gerist í Evrópu. Neyslan er mest hjá ungu fólki, en fátíð meðal þeirra, sem eru eldri en 45 ára.

Hvað sem því líður getur regluleg neysla verið afdrifarík. Í frétt um skýrsluna í Morgunblaðinu í gær segir að kannabis sé helsta neysluefni yfir þriðjungs þeirra, sem leita sér aðstoðar vegna fíknar.

Í skýrslu ráðsins segir að hvorki ungir neytendur, foreldrar þeirra né skólastarfsfólk þekki áhrif kannabisefna á líkamann og hugann nægilega vel.

Á vefsíðu tímaritsins The Economist var í vikunni fjallað um áhrif kannabis. Þar kemur fram að styrkur virka efnisins í vímuefninu, tetrahýdrókannabínol, fari vaxandi og nú megi finna afbrigði þar sem styrkurinn fari yfir 25%.

Þar er vitnað í rannsókn, sem birt var í þessari viku í læknatímaritinu Lancet , um áhrif efnisins. Rannsóknin leiðir í ljós að fari styrkurinn yfir 10% fimmfaldist hættan á geðrænum vandamálum með reglulegri notkun. Ef styrkurinn er minni þrefaldast hættan.

Í greininni í The Economist segir að með auknum rannsóknum hafi vísbendingum fjölgað um að notkun á kannabis sé á bak við geðheilbrigðisvandamál í Evrópu. Vandinn sé sennilega mestur í Amsterdam og London þar sem mest sé um efni með miklu magni tetrahýdrókannabínols.

Í Bandaríkjunum og Kanada er nú verið að rýmka reglur og lögleiða almenna neyslu víða. Ekki er ljóst hvaða áhrif lögleiðing mun hafa á geðheilbrigði almennings. Má segja að búin hafi verið til rannsóknarstofa og niðurstöðurnar verði kynntar síðar. The Economist vitnar í ónefndan vísindamann, sem hafði á orði að tilraunadýr væru dýr leið til að öðlast skilning á hættum kannabisnotkunar, en íbúar Norður-Ameríku væru ókeypis.

Það er kaldhæðnisleg afstaða en undirstrikar hversu varasamt er að fara út í slíkar æfingar þegar heilbrigði ungs fólks er annars vegar.