Furðu lostinn Hljómsveitin Blóðmör varð sigurvegari Músíktilrauna í ár og voru sumir furðu lostnari en aðrir.
Furðu lostinn Hljómsveitin Blóðmör varð sigurvegari Músíktilrauna í ár og voru sumir furðu lostnari en aðrir. — Ljósmynd/Brynjar Gunnarsson
[ Smellið til að sjá stærri mynd ]
Lögin grípandi, hljómur til fyrirmyndar, öskur reið, gítarsóló æsandi og kaflaskiptingar glæsilegar. Það var því ljóst á lokamínútunum að þarna væru sigurvegarar Músiktilrauna 2019 komnir!

Af tilraunum

Ragnheiður Eiríksdóttir

heidatrubador@gmail.com

Ljómandi Músíktilraunir eru nú nýafstaðnar en úrslit þeirra fóru fram í troðfullum Norðurljósum í Hörpu í fyrrakvöld. Það var einstaklega mikil fjölbreytni í Músíktilraunum þetta árið og kokteill kvöldsins samanstóð af þungarokki, skúturokki, indíi, þjóðlagatónlist, pönki, reggípoppi, amerísku rokki og dansvænni raftónlist, svo það var næsta víst að allir myndu finna eitthvað við sitt hæfi.

Ég iðaði í skinninu þar sem ég sat og beið fyrstu sveitarinnar sem var Merkúr frá Vestmannaeyjum. Arnar Júlíusson, söngvari og gítarleikari, átti hreinlega heima á sviðinu svo öruggur var hann. Lokalag þeirra, „To the last man“, reyndist enn og aftur þeirra traustasta lag og þar náðu þeir að gleyma sér og spila af gleði og öryggi.

Við tók Konfekt, þrjár tvítugar stúlkur frá Seltjarnarnesi sem leika það sem stundum hefur verið kallað „skúturokk“ og vísar til léttklæddra sveita um miðbik áttunda áratugarins að syngja eitthvað mjúkt og grúvandi og fagurlega raddað um borð í bátunum sínum. Fyrir utan bátana bauð Konfekt upp á allt þetta og framúrskarandi grípandi lög í ofanálag. Þarna er komin hljómsveit til að fylgjast með.

Það var töluverð breidd í lögum Parasol og bandið var töluvert betra en á undanúrslitakvöldi sínu. Söngvarinn Tómas Árni Héðinsson var mjög öruggur og hljómaði í fyrsta laginu eins og Lou Reed, gífurlega afslappaður með letilegar fraseringar sem fóru honum vel.

Ásta, klassískt menntaður víóluleikari sem er nýbyrjuð að spila á gítar og syngja frumsamin lög, bætti frábæru lagi við þau tvö sem hljómuðu í undanúrslitum. Ljóst er að ef hún heldur áfram á þessum slóðum mun hún geta breytt heiminum. Henni tekst að minnsta kosti að stöðva tímann og hrífa alla, meira að segja mestu kúlista, með sér í sinn fagra heim.

Síðust fyrir hlé var Eilíf sjálfsfróun með sitt skondna ádeilupönk og uppskar hlátrasköll og almenna kátínu um allan sal og svo var þetta hálfnað og tími kominn á gott kaffi og smástund til að melta alla snilldina sem var að baki.

Síðari hluti hófst með hinni geðþekku Karma Brigade, sextett sem raðar sínu reggípoppi fagurlega í hljóðheiminn.

Flammeus frá Akureyri voru næstir, fullir af einbeitingu. Það er helst að verið sé að reyna að koma aðeins of mörgum hugmyndum að í einu, og lög og kaflaskiptingar kæmust betur til skila væri öllu leyft að anda aðeins betur.

Hinar 15 ára stöllur Guðlaug Sóley Höskuldsdóttir og Aníta Núr Magnúsdóttir í gugusar buðu upp á skemmtilega dagskrá. Fyrsta lagið, með gott grúv og dansrútínu, er áreiðanlega eitt flottasta ósungna lag sem keppt hefur í Tilraununum. Nýjasta lagið var svo emópopp sem breyttist í mínimalíska teknótónlist. Allt var flutt af sjálfsöryggi og verður gaman að fylgjast með þessari sveit blómstra og springa út.

Caravan Kids úr Garðabæ hljómuðu eins og þau væru að spila á amerískri sveitakrá við þjóðveg 66 í Bandaríkjunum. Söngkonan hefur svalan tón í röddinni og gott viðmót en það er helst að lagasmíðar mættu slípast ögn.

Dread lightly lék fallega þjóðlagatónlist sem lagðist að manni eins og hlýtt teppi í kuldakasti. Arnaldur kann að semja lög og koma fram og þetta atriði á bara eftir að þroskast og verða sterkara er fram líða stundir.

Það má segja að lokahljómsveitin, Blóðmör úr Kópavogi, hafi átt salinn. Hún kom, sá, spilaði og sigraði. Það virtist allt ganga upp hjá þeim: Lögin grípandi, hljómur til fyrirmyndar, öskur reið, gítarsóló æsandi og kaflaskiptingar glæsilegar. Það var því ljóst á lokamínútunum að þarna væru sigurvegarar Músíktilrauna 2019 komnir!

Konfekt landaði öðru sætinu örugglega og hrífandi þjóðlagatónlist Ástu hreppti það þriðja. Karma Brigade var svo kosin hljómsveit fólksins.

Í einstaklingsverðlaununum var Tumi Hrannar Pálmason í Flammeus kosinn bassaleikari Músiktilrauna. Haukur Þór Valdimarsson í Blóðmör vann gítarleikaraverðlaunin. Hljómborðsleikari Músiktilrauna var Guðjón Jónsson í Flammeus. Rafheili Músiktilrauna var Guðlaug Sóley Höskuldsdóttir í gugusar. Konfekt landaði tvennum einstaklingsverðlaunum, því Anna Ingibjörg Þorgeirsdóttir fékk söngvaraverðlaunin og Eva Kolbrún Kolbeins var valin trommuleikari Músiktilrauna. Að lokum fékk Ásta Kristín Pjetursdóttir verðlaun fyrir íslenska textagerð og er hún vel að þeim verðlaunum komin.

Músíktilraunir eru og verða ávallt minn uppáhaldsmenningarviðburður og það er með örlítið meira sólskin í hjarta sem ég valhoppa nú inn í vorið, vitandi að æsku okkar er borgið. Sagan endurtekur sig svo að ári því tónlist er fögur á sem enginn fær stöðvað. Það er mikil blessun að fá að baða sig í henni.