Kvennalið Grindavíkur í körfuknattleik færðist í gær skrefi nær sæti í úrvalsdeildinni á næsta keppnistímabili. Grindavík vann Fjölni öðru sinni í rimmu liðanna um keppnisréttinn, 81:79, eftir að hafa verið sjö stigum yfir í hálfleik, 45:38.

Kvennalið Grindavíkur í körfuknattleik færðist í gær skrefi nær sæti í úrvalsdeildinni á næsta keppnistímabili. Grindavík vann Fjölni öðru sinni í rimmu liðanna um keppnisréttinn, 81:79, eftir að hafa verið sjö stigum yfir í hálfleik, 45:38. Liðin mætast í þriðja sinn á miðvikudagskvöld á heimavelli Fjölnis. Vinni Grindavík þá viðureign einnig tryggir liðið sér sæti í úrvalsdeildinni. iben@mbl.is