Boðið verður upp á pallborðsumræður um Jónsmessunæturdraum eftir Shakespeare í Veröld – húsi Vigdísar í dag kl. 17.
Boðið verður upp á pallborðsumræður um Jónsmessunæturdraum eftir Shakespeare í Veröld – húsi Vigdísar í dag kl. 17. Fyrir svörum sitja Hilmar Jónsson leikstjóri, Ólafía Hrönn Jónsdóttir leikkona, Eva Signý Berger leikmyndahöfundur og Þórarinn Eldjárn þýðandi. Stofnun Vigdísar Finnbogadóttur í erlendum tungumálum stendur fyrir viðburðinum í samstarfi við Þjóðleikhúsið. Ókeypis aðgangur.