Þórshöfn Átta strákar og tvær stelpur eru í 10. bekk Grunnskólans.
Þórshöfn Átta strákar og tvær stelpur eru í 10. bekk Grunnskólans. — Morgunblaðið/Líney Sigurðardóttir
Líney Sigurðardóttir Þórshöfn Daprir unglingar í 10.

Líney Sigurðardóttir

Þórshöfn

Daprir unglingar í 10. bekk í Grunnskólanum á Þórshöfn sjá nú fram á að ekkert verði af skólaferðalagi þeirra til Tenerife um páskana vegna gjaldþrots WOW air, en ferðin var staðgreidd með einni millifærslu til flugfélagsins tveimur vikum fyrir gjaldþrot þess.

„Við vorum búin að safna fyrir þessu ferðalagi í fimm ár og áttum eina milljón,“ sögðu krakkarnir, sem eru alls tíu í bekknum. „Við vorum dugleg við fjáraflanir, vorum með kökubasar, flöskusöfnun, spilakvöld og fleira öll þessi ár en nú er allt farið,“ sögðu þessir vonsviknu unglingar sem höfðu hlakkað til allan veturinn að komast í sólina eftir langan og dimman vetur.

„Við eigum núna 60 þúsund og erum að spá í að fara kannski til Vestmannaeyja fljótlega eftir páska, sem verður þá náms- og kynningarferð í staðinn, en það er samt of dýrt fyrir okkur. Okkur datt í hug að leita eftir styrk í þá ferð bæði til foreldra og sveitarfélaganna hér en það er ekkert frágengið ennþá. Okkur finnst þetta bara hundfúlt, okkur langaði svo mikið út í sól og hita eftir að hafa baksað við að safna í öll þessi ár.“

Þessi tíu ungmenni í grunnskólanum á Þórshöfn hafa nú kynnst veruleikanum í íslenskum viðskiptaheimi og var á þeim að heyra að sú beiska reynsla myndi lengi verða þeim minnisstæð.