Aðgerðir Áfram lækkar bindiskyldan.
Aðgerðir Áfram lækkar bindiskyldan.
Stjórnvöld í Kína hafa ákveðið að freista þess að örva hagkerfið með því að lækka bindiskyldu banka enn frekar.

Stjórnvöld í Kína hafa ákveðið að freista þess að örva hagkerfið með því að lækka bindiskyldu banka enn frekar. Standa vonir til að með þessu takist að liðka fyrir lánveitingum til smárra og meðalstórra fyrirtækja, sem þykja einn mikilvægasti drifkraftur hagvaxtar í landinu. Reuters greinir frá þessu og hefur eftir ríkisfréttastofunni Xinhua.

Lækkun bindiskyldu er í samræmi við væntingar markaðsgreinenda en framboð á lánsfé dregst iðulega saman í apríl þegar kínversk fyrirtæki þurfa að standa skil á sköttum af rekstri fyrsta ársfjórðungs.

Bindiskylda kínverskra banka hefur farið lækkandi jafnt og þétt og var minnkuð fimm sinnum á síðasta ári. ai@mbl.is