Svifryk Þegar ekki er sópað í borginni eykst mengun og er því spáð.
Svifryk Þegar ekki er sópað í borginni eykst mengun og er því spáð. — Morgunblaðið/Júlíus
Þrjár milljónir kostar á dag að hafa frítt í Strætó, að sögn Guðmundar Heiðars Helgasonar, upplýsingafulltrúa Strætó, en í dag munu íbúar á höfuðborgarsvæðinu geta nýtt sér frían dagsmiða í Strætóappinu vegna vísbendinga um svifryksmengun.

Þrjár milljónir kostar á dag að hafa frítt í Strætó, að sögn Guðmundar Heiðars Helgasonar, upplýsingafulltrúa Strætó, en í dag munu íbúar á höfuðborgarsvæðinu geta nýtt sér frían dagsmiða í Strætóappinu vegna vísbendinga um svifryksmengun. Ákvörðunin er tekin einhliða af Strætó, en ekki hefur verið mótaður ferill eða skipulag þannig að ávallt verði frítt í Strætó þegar ógn stendur af svifryki í borginni.

Spurður hvort Strætó búist við mikilli fjölgun farþega í dag kveðst Guðmundur vonast til fjölgunar. „Við verðum með einhverja í flotanum á bakvakt. Ef það verður mikið álag á ákveðnum leiðum getum við þá sent aukabíla. Það hefur oft reynst vel. Við erum að gera þetta í fyrsta sinn og vitum í raun ekki hverju búast má við,“ segir hann.

Verða að nota Strætóappið

Borið hefur á gagnrýni vegna þess fyrirkomulags Strætó að þeir sem vilji taka strætó frítt á gráum dögum þurfi að ná í Strætóappið og virkja inni í því frímiða sem gildir út daginn. „Fólk hefur spurt hvort það sé ekki einfaldara að hafa bara frítt fyrir alla. Ástæðan fyrir því að við gerum þetta svona er að við viljum geta mælt það vel hve margir nýta sér þetta og virkja þá miðann. Síðan viljum við líka gefa fleirum færi á því að prófa appið og vita hvernig það virkar. Það er hugsunin,“ segir hann.

Spurður hver kostnaðurinn við að hafa frítt í strætó í heilan dag sé, segir Guðmundur að miðað við venjulegan dag yrði kostnaðurinn u.þ.b. þrjár milljónir króna. „Ég veit ekki hver endanlegur kostnaður af þessu verður á morgun, það fer eftir því hve margir munu nota þennan miða í staðinn fyrir hefðbundin fargjöld í rauninni,“ segir Guðmundur.

Ákvörðunin um að hafa frítt í strætó er tekin af Strætó, en ekki af þeim sveitarfélögum sem eru eigendur félagsins. Ekki liggur fyrir ferill eða skipulag þannig að ávallt verði frítt í strætó á svonefndum „gráum dögum“. jbe@mbl.is