Jóhannes Guðmundsson Nordal
Jóhannes Guðmundsson Nordal
Jóhannes Guðmundsson Nordal fæddist 8. apríl 1850 á Kirkjubæ í Norðurárdal, A-Hún. Foreldrar hans voru Guðmundur Ólafsson, f. 1814, d. 1859, og Margrét Jónsdóttir, f. 1818, d. 1865, sem þar bjuggu. Þegar faðir Jóhannesar lést bjó móðir hans áfram í Kirkjubæ með börn sín níu.

Jóhannes Guðmundsson Nordal fæddist 8. apríl 1850 á Kirkjubæ í Norðurárdal, A-Hún. Foreldrar hans voru Guðmundur Ólafsson, f. 1814, d. 1859, og Margrét Jónsdóttir, f. 1818, d. 1865, sem þar bjuggu. Þegar faðir Jóhannesar lést bjó móðir hans áfram í Kirkjubæ með börn sín níu.

Jóhannes fór ungur að heiman í vinnumennsku og var í 18 ár hjá hálfbróður sínum, sem bjó á Eyjólfsstöðum í Vatnsdal. Flest eða öll alsystkini hans fluttust hins vegar til Vesturheims og þangað fór Jóhannes einnig 1887, en þá var afar mikið harðæri norðanlands, og tók upp ættarnafnið Nordal eins og systkini hans höfðu gert en þau kenndu sig við fæðingarsveitina; Norðurárdal.

Í Kanada stundaði Jóhannes einkum fiskveiðar á Winnipeg-vatni á sumrin en vann við íshús á veturna. Þá var ekkert íshús til á Íslandi og Tryggvi Gunnarsson, bankastjóri og alþingismaður, gekkst árið 1894 fyrir því að stofnað var félag um rekstur slíks húss í Reykjavík og ákveðið að fá mann að utan sem kynni til verka.

Tryggvi fékk Jóhannes til að koma heim, enda mun hann alltaf hafa haft í huga að snúa aftur. Var hann þegar ráðinn framkvæmdastjóri félagsins og stóð fyrir byggingu hússins, sem jafnan var kennt við hann og kallað Nordalsíshús. Þar var bæði fryst síld til beitu og einnig annar fiskur, auk þess sem íshúsið keypti kjöt til geymslu og seldi, og má kalla starfsemi íshússins upphafið að byltingu á atvinnuháttum landsmanna. Jóhannes var forstjóri íshússins allt til 1933.

Jóhannes var ókvæntur en eignaðist tvö börn, Sigurð Nordal prófessor, f. 1886, d. 1974, með Báru Jósefínu Sigurðardóttur, og Önnu Nordal, prestsfrú í Ólafsfirði, f. 1897, d. 1986, með Sólbjörgu Ólöfu Jónsdóttur. Síðustu árin bjó Jóhannes í skjóli Sigurðar sonar síns og Ólafar tengdadóttur sinnar.

Jóhannes lést 8. október 1946.