Verðlaunaræðumaður Fanney ásamt Judy Honcik Lovett, stjórnarmanni í Rótarý, eftir sigurinn í aðalkeppninni.
Verðlaunaræðumaður Fanney ásamt Judy Honcik Lovett, stjórnarmanni í Rótarý, eftir sigurinn í aðalkeppninni. — Ljósmynd/Einkasafn
Snorri Másson snorrim@mbl.

Snorri Másson

snorrim@mbl.is

„Ef ræðan kemur frá hjartanu getur hún breytt því hvernig fólk hugsar, hvernig það sér heiminn,“ segir Fanney Bjargardóttir, 16 ára íslensk stúlka sem er búsett í Turlock í Kaliforníu í Bandaríkjunum ásamt móður sinni. Hún hefur farið sigurför um umdæmi sitt í ræðukeppnum sem haldnar eru á vegum Rótarý. Og nú er Fanney á leiðinni til Monterrey, að flytja ræðuna á árlegri rótarý-ráðstefnu umdæmisins.

Verðlaunaræðan sækir innblástur sinn í þema ársins hjá Rótarý sem á ensku nefnist „Be the inspiration“.

Fyrst vann Fanney innanbæjarkeppnina þar sem þrír kepptu og voru verðlaunin 125 Bandaríkjadalir. Að auki fékk hún sem sigurvegari þeirrar keppni að vera fulltrúi Turlock í næstu keppni. Í þeirri kepptu fulltrúar nærliggjandi bæja einnig og í þetta skiptið vann Fanney aftur og hlaut hún þá 175 dali fyrir. Þá var komið að stærstu keppninni, þar sem tólf þátttakendur komu saman frá svæði sem nær til Stockton í norðri og Madera í suðri. Bar Fanney þar einnig sigur úr býtum og verðlaunaféð var í takt við umfang: 1.000 dalir.

Fanney hreppti þannig fyrsta sæti í öllum áföngum þessara keppna og verður því send fyrir hönd bæjarsamtakanna á ráðstefnuna í Monterrey. „Ég er mjög spennt og líka stolt af árangri mínum,“ segir Fanney.

Ræðan hennar er fimm mínútna löng og fjallar sem fyrr segir um innblástur og fyrirmyndir. Móðir Fanneyjar er hennar helsta fyrirmynd, segir hún, en á sviði mælskulistarinnar nefnir hún helsta Michelle Obama, fyrrverandi forsetafrú Bandaríkjanna og virka opinbera persónu. „Hún er ótrúlegur ræðumaður; þegar hún flytur ræðu kemur hún sannarlega frá hjartanu,“ segir Fanney.

Líffræði, enska og félagsvísindi

Fanney tekur ötullega þátt í starfi málfundafélagsins í skólanum sínum, auk þess sem hún er meðlimur í „mock trial“-liðinu sem setur á svið réttarhöld og líkir þannig eftir starfi dómstóla.

Er ekki sýnt í hvað stefnir? „Lögmaður? Maður veit aldrei. Einmitt núna finnst mér skemmtilegast að læra líffræði,“ segir Fanney. Hún er á öðru ári í framhaldsskóla núna og stefnir á að hafa líffræði að aðalfagi í háskóla en ensku sem aukafag, eða jafnvel einhver félagsvísindi.

Fanney hefur búið í Bandaríkjunum í að verða tíu ár. Ræður sínar er hún vön að flytja á ensku en hún útilokar ekki, ef tækifæri gæfist, að flytja ræður á móðurmáli sínu. Þá útilokar hún heldur ekki að starfa á Íslandi að námi loknu, þar sem hún veit að þar eru sóknarfæri á sviði rannsókna í læknisfræði.