Tvenna Eden Hazard fagnar ásamt Ross Barkley og Jorginho.
Tvenna Eden Hazard fagnar ásamt Ross Barkley og Jorginho. — AFP
Eden Hazard skaut Chelsea upp í þriðja sæti ensku úrvalsdeildarinnar í knattspyrnu í gærkvöld þegar hann skoraði bæði mörk liðsins í 2:0-sigri á West Ham á Stamford Bridge. Fyrra markið var sérlega glæsilegt, á 24.

Eden Hazard skaut Chelsea upp í þriðja sæti ensku úrvalsdeildarinnar í knattspyrnu í gærkvöld þegar hann skoraði bæði mörk liðsins í 2:0-sigri á West Ham á Stamford Bridge. Fyrra markið var sérlega glæsilegt, á 24. mínútu, þegar hann brunaði í gegnum miðja vörn West Ham og skoraði. Seinna markið gerði hann á lokamínútum leiksins eftir sendingu frá Ross Barkley. Hazard hefur nú skorað 16 mörk í deildinni í vetur og auk þess lagt upp 12 mörk fyrir Lundúnaliðið. vs@mbl.is