K100 býður í páskaeggjaleit í Hádegismóum næsta laugardag klukkan 14. Leikhópurinn Lotta hitar krakkana upp og Ásgeir Páll ræsir leitina. Mörg hundruð ungar verða faldir á svæðinu og fyrir hvern unga fæst páskaegg að launum frá Nóa Síríusi.
K100 býður í páskaeggjaleit í Hádegismóum næsta laugardag klukkan 14. Leikhópurinn Lotta hitar krakkana upp og Ásgeir Páll ræsir leitina. Mörg hundruð ungar verða faldir á svæðinu og fyrir hvern unga fæst páskaegg að launum frá Nóa Síríusi. Ef þú finnur Grettis-fígúru færðu Grettisegg nr. 4 og sérmerktir páskaungar veita glaðning frá 66°norður, Spilavinum eða YoYo ís. Happdrætti verður klukkan 15:45 með vinninga á borð við Samsung S10e farsíma, GalaxyBuds heyrnartól og gjafabréf frá Jóa útherja. Allir krakkar fá glaðning frá Andrési Önd og veitingar verða í boði fyrir alla.