Martin Hermannsson
Martin Hermannsson
Martin Hermannsson landsliðsmaður í körfuknattleik spilar í kvöld sinn stærsta leik á ferlinum til þessa með félagsliði. Alba Berlín, lið hans í Þýskalandi, er komið til Valencia á Spáni þar sem fyrsti úrslitaleikur Evrópubikarsins fer fram í kvöld.
Martin Hermannsson landsliðsmaður í körfuknattleik spilar í kvöld sinn stærsta leik á ferlinum til þessa með félagsliði. Alba Berlín, lið hans í Þýskalandi, er komið til Valencia á Spáni þar sem fyrsti úrslitaleikur Evrópubikarsins fer fram í kvöld. Tvo sigurleiki þarf til að hreppa titilinn sem jafnframt veitir keppnisrétt í Evrópudeildinni (Euroleague) næsta vetur. Liðin mætast aftur í Berlín á föstudagskvöld en oddaleikur verður í Valencia á mánudag ef til hans kemur.