Neytendastofa hefur bannað Heklu og tónlistarmanninum Emmsjé Gauta að nota duldar auglýsingar á Instagram og Facebook.

Neytendastofa hefur bannað Heklu og tónlistarmanninum Emmsjé Gauta að nota duldar auglýsingar á Instagram og Facebook.

Í tilkynningu á vef Neytendastofu kemur fram að borist hafi ábendingar um færslur Heklu og Emmsjé Gauta á samfélagsmiðlunum Instagram og Facebook sem hugsanlega væru duldar auglýsingar á AudiQ5-bifreið.

Neytendastofa krafði Heklu um upplýsingar um hvort endurgjald hefði komið fyrir umfjöllunina og hver aðkoma fyrirtækisins hefði verið að umfjölluninni. Fram kom að Hekla gerði samkomulag við tónlistarmanninn um m.a. markaðssetningu á bifreiðinni auk þess sem gerður var rekstrarleigusamningur um afnot af bifreið til einkanota.

Neytendastofa taldi að um væri að ræða markaðssetningu og að ekki hefði komið fram með nægilega skýrum hætti að umfjöllunin hefði verið auglýsing eða hún væri gerð í viðskiptalegum tilgangi.

Um tvær færslur er að ræða frá 11. september 2018, þ.e. myndbirtingu á instagram-reikningi Emmsjé Gauta og myndbirtingu á instagram-reikningi Heklu.