Seabear 2019 Liðsmenn hljómsveitarinnar, frá vinstri til hægri, eru Halldór Ragnarsson, Örn Ingi Ágústsson, Sindri Már Sigfússon, Guðbjörg Hlín Guðmundsdóttir, Kjartan Bragi Bjarnason og Sóley Stefánsdóttir.
Seabear 2019 Liðsmenn hljómsveitarinnar, frá vinstri til hægri, eru Halldór Ragnarsson, Örn Ingi Ágústsson, Sindri Már Sigfússon, Guðbjörg Hlín Guðmundsdóttir, Kjartan Bragi Bjarnason og Sóley Stefánsdóttir.
Helgi Snær Sigurðsson helgisnaer@mbl.is Hljómsveitin Seabear mun koma fram á Iceland Airwaves-tónlistarhátíðinni í haust en hún hefur legið í dvala frá árinu 2011. Liðsmenn sveitarinnar hafa verið önnum kafnir í öðrum verkefnum frá því Seabear lagðist í dvala, Sindri Már Sigfússon gefið út og komið fram undir nafninu Sin Fang og Sóley Stefánsdóttir átt góðu gengi að fagna sem sólótónlistarmaðurinn Sóley, svo tveir liðsmenn séu nefndir.

Helgi Snær Sigurðsson

helgisnaer@mbl.is

Hljómsveitin Seabear mun koma fram á Iceland Airwaves-tónlistarhátíðinni í haust en hún hefur legið í dvala frá árinu 2011. Liðsmenn sveitarinnar hafa verið önnum kafnir í öðrum verkefnum frá því Seabear lagðist í dvala, Sindri Már Sigfússon gefið út og komið fram undir nafninu Sin Fang og Sóley Stefánsdóttir átt góðu gengi að fagna sem sólótónlistarmaðurinn Sóley, svo tveir liðsmenn séu nefndir.

Seabear var upphaflega sólóverkefni Sindra Más en þróaðist yfir í tilraunakennda og fjölmenna og þjóðlagaskotna indírokksveit. Seabear gaf út tvær hljóðversskífur á vegum Morr Music, The Ghost That Carried Us Away árið 2007 og We Built a Fire þremur árum síðar. Var þeim vel tekið af gagnrýnendum og hróður sveitarinnar barst víða og hún hélt í langar tónleikaferðir um Evrópu og Bandaríkin. Þá rötuðu lög sveitarinnar líka í sjónvarpsþættina Gossip Girl og Grey's Anatomy .

Og nú er sveitin vöknuð af værum blundi og farin að vinna að því að leggja drög að næstu plötu.

Léku á styrktartónleikum

Sóley byrjaði í hljómsveitinni árið 2010 og vann því með henni að annarri breiðskífunni, We Built a Fire fyrrnefndri. Hún segir endurkomu sveitarinnar þannig til komna að Halldór bassaleikari hafi misst eigur sínar í bruna og hljómsveitin hafi í kjölfarið leikið á styrktartónleikum fyrir hann á Húrra og leikið nokkur lög. „En það var áður en við ákváðum að gera eitthvað saman,“ nefnir Sóley og að hljómsveitin hafi oft stungið upp á því í gríni að byrja aftur að spila. Þau hafi öll verið upptekin við sína listsköpun en Sindri hafi svo gert alvöru úr hugmyndinni og hóað liðinu saman.

„Það eru allir að eldast og rugludallarnir eru orðnir edrú núna,“ segir Sóley sposk um hljómsveitina Seabear árið 2019. Og talandi um aldur þá er Sóley yngsti meðlimur hljómsveitarinnar, 32 ára og Halldór átti afmæli um daginn, varð 38 ára. Liðsmenn eru allir á þessu aldursbili, að sögn Sóleyjar, fólk á fertugsaldri sem hefur komið víða við í listsköpun sinni frá því að Seabear lagðist í dvala.

Sóley segir þau Sindra hafa sinnt sínum sólóverkefnum og að Guggý (Guðbjörg) hafi verið í „alls konar fiðlugríni“. „Dóri er í myndlist og gengur farsællega og Kjartan og Örn Ingi hafa verið eitthvað að spila þannig að við fórum öll í okkar horn,“ segir hún.

Tímarnir breytast og mennirnir með

Spurð út í hina væntanlegu plötu Seabear segir Sóley að hugmyndavinnan sé komin í gang. „Við ætlum líka bara að sjá hvað gerist, erum byrjuð að henda í einhver lög og svo bara sjáum við til. Þeir sem mæta á þessa tónleika á Airwaves vilja örugglega líka heyra gömlu lögin,“ segir hún.

En telur Sóley að tónlist Seabear muni taka einhverjum breytingum? „Jaaa, við erum búin að vera ræða það og auðvitað breytast tímarnir og maður sjálfur með sem listamaður, þroskast á níu árum og ekkert okkar er að gera einhverja svona kassagítars-kántrítónlist núna, eins og við vorum kannski svolítið að gera. En við erum samt ekkert að fara að gera rappplötu,“ segir Sóley kímin, „við erum að gera þetta af því við erum vinir og finnst þetta gaman“.

Seabear-túrar voru skrautlegir

– Verða engir tónleikar haldnir áður en kemur að Airwaves?

„Við erum ekki búin að ákveða það, þetta gerðist allt mjög óvænt og við ætlum bara að sjá til. Það getur vel verið að við spilum eitthvað áður,“ svarar Sóley og telur líklegt að Seabear muni leika í Hafnarhúsi á Iceland Airwaves. Hún hafi gert það fyrir margt löngu, nýkomin úr fimm vikna löngu tónleikaferðalagi. „Þessir túrar voru alltaf mjög skrautlegir og ég held að þeir séu hálfpartinn í sögubókunum,“ segir Sóley og hlær. Ýmsum sögum fari af Seabear-tónleikaferðum þar sem jafnan voru upphitunarsveitir með í för og því nokkuð fjölmennt.

Blaðamaður spyr nánar út í þessi skrautlegheit og fær þau svör að túrarnir hafi verið ein af ástæðum þess að hljómsveitin hætti á sínum tíma. „En þeir sem voru hvað glaðastir eru allir orðnir svo rólegir. Ég var yngst og skildi ekkert hvað var að gerast,“ bætir Sóley við glettin.

– Nú voruð þið orðin vinsæl utan landsteinanna og áttuð ykkur marga aðdáendur erlendis. Er ekki líklegt að þið farið aftur út að spila?

„Við erum að hugsa málið, við vorum ekkert „Of Monsters and Men“-fræg en okkur gekk ofboðslega vel úti og enginn veit hvernig hefði farið hefðum við haldið áfram. Kannski var bara fínt að hætta en jú, við erum alveg opin fyrir öllu. Það eru allir komnir með börn og það er aðeins flóknara að vera sjö foreldrar en það getur vel verið að við förum í styttri túra ef þeir eru í boði,“ svarar Sóley.

Frekari upplýsingar um dagskrá Iceland Airwaves má finna á vef hátíðarinnar, icelandairwaves.is.