ÍR lagði Stjörnuna að velli 85:76 í öðrum leik liðanna í undanúrslitum Íslandsmóts karla í körfuknattleik í Breiðholtinu í gærkvöldi. Staðan í rimmu liðanna er nú 1:1 en vinna þarf þrjá leiki til að komast í úrslit. Næsti leikur verður í Garðabænum.

ÍR lagði Stjörnuna að velli 85:76 í öðrum leik liðanna í undanúrslitum Íslandsmóts karla í körfuknattleik í Breiðholtinu í gærkvöldi. Staðan í rimmu liðanna er nú 1:1 en vinna þarf þrjá leiki til að komast í úrslit. Næsti leikur verður í Garðabænum. Stjarnan hafnaði í efsta sæti Dominos-deildarinnar í vetur en ÍR í 7. sæti. 27