Reykjavíkurliðin Valur og Fram eru 2:0 yfir gegn Haukum og ÍBV í undanúrslitum Íslandsmóts kvenna í handknattleik eftir leik gærkvöldsins. Fram, sem er meistari síðustu tveggja ára, sigraði ÍBV 34:29 í Vestmannaeyjum.
Reykjavíkurliðin Valur og Fram eru 2:0 yfir gegn Haukum og ÍBV í undanúrslitum Íslandsmóts kvenna í handknattleik eftir leik gærkvöldsins. Fram, sem er meistari síðustu tveggja ára, sigraði ÍBV 34:29 í Vestmannaeyjum. Valur, sem er deildarmeistari, lagði Hauka að velli á Ásvöllum 24:20. Vinna þarf þrjá leiki til að komast í úrslit en það voru einmitt Fram og Valur sem léku til úrslita í fyrra. 26