— Morgunblaðið/Árni Sæberg
Benedikt Jónsson, sendiherra Íslands í Danmörku, afhenti í gær Listasafni Reykjavíkur átján áður óþekkt verk eftir Sölva Helgason. Verkin koma í fyrsta sinn fyrir sjónir almennings á sýningu á verkum Sölva sem opnuð verður á Kjarvalsstöðum 25. maí.
Benedikt Jónsson, sendiherra Íslands í Danmörku, afhenti í gær Listasafni Reykjavíkur átján áður óþekkt verk eftir Sölva Helgason. Verkin koma í fyrsta sinn fyrir sjónir almennings á sýningu á verkum Sölva sem opnuð verður á Kjarvalsstöðum 25. maí. Ingrid Nielsen, eigandi verkanna, hefur ákveðið að gefa íslensku þjóðinni þau. Amma hennar og nafna kom með verkin til Danmerkur árið 1912. Á myndinni eru Harpa Björnsdóttir sýningarstjóri, Benedikt Jónsson sendiherra og Sigurður Trausti Traustason, deildarstjóri hjá Listasafni Reykjavíkur.