Brosbikarinn. A-Allir Norður &spade;ÁG109 &heart;D ⋄1075 &klubs;D10972 Vestur Austur &spade;D76 &spade;K532 &heart;75 &heart;8632 ⋄Á62 ⋄K43 &klubs;ÁK654 &klubs;G3 Suður &spade;84 &heart;ÁKG1094 ⋄DG98 &klubs;8 Suður spilar 4&heart;.

Brosbikarinn. A-Allir

Norður
ÁG109
D
1075
D10972

Vestur Austur
D76 K532
75 8632
Á62 K43
ÁK654 G3

Suður
84
ÁKG1094
DG98
8

Suður spilar 4.

„Við þurfum að hittast oftar,“ sagði Chen Yeh í mótslok síðasta vor þegar hann ákvað að breyta tvíæringnum Yeh Bros Cup í einæring. Spilið að ofan er frá fyrsta áralega hittingnum – úrslitaleik Lavazza og kínverskra landsliðsmanna í Sjanghæ á laugardaginn.

Það er tvennt sem menn þurfa að vita um Chen Yeh: Hann er stofnandi stórfyrirtækisins Yeh Brothers og ákafur bridsáhugamaður. Peningar eru afl þeirra hluta sem gera skal, að mati Chen, og allt frá fyrsta móti 2003 hafa verðlaun Brosbikarsins verið svimandi há (190 þúsund Bandaríkjadalir fyrir fyrsta sætið). Mótið stendur yfir í tæpa viku og keppa 28 sveitir um góssið, sem að þessu sinni rann til heimamanna.

Linlin Hu er einn þeirra. Hann vakti í annarri hendi á 4 og þar við sat. Agustin Madala spilaði út Á og síðan LITLU laufi í öðrum slag?! Hu stakk upp drottningu og henti spaða heima. Tíu slagir.