Bjarni Benediktsson
Bjarni Benediktsson
Bjarni Benediktsson, fjármála- og efnahagsráðherra, undirritaði um helgina yfirlýsingu um alþjóðlegan samstarfsvettvang fjármálaráðherra um aðgerðir í loftslagsmálum.

Bjarni Benediktsson, fjármála- og efnahagsráðherra, undirritaði um helgina yfirlýsingu um alþjóðlegan samstarfsvettvang fjármálaráðherra um aðgerðir í loftslagsmálum. Fyrsti fundur vettvangsins var haldinn um helgina í tengslum við vorfund Alþjóðagjaldeyrissjóðsins og Alþjóðabankans. Fulltrúar um 50 ríkja sátu fundinn og 22 þeirra skrifuðu undir yfirlýsinguna.

Á vefsíðu stjórnarráðsins segir að í aðildinni felist m.a. viðurkenning á þeirri ógn sem steðjar að efnahagskerfum heimsins, samfélögum og umhverfinu, sem felur í sér áhættu þegar kemur að efnahagslegum vexti og þjóðhagslegum stöðugleika.

Fjármálaráðherrarnir telja að í krafti embættis síns séu þeir í lykilstöðu til að hraða umbreytingum til að draga úr losun og auka kolefnisbindingu og skapa umhverfisvænni hagkerfi með stefnumótun á sviði þjóðhags- og ríkisfjármála og, þar sem það á við, með reglusetningu, samkvæmt vefsíðunni.