Skoraði Agla María Albertsdóttir gerði eitt marka Breiðabliks.
Skoraði Agla María Albertsdóttir gerði eitt marka Breiðabliks. — Morgunblaðið/Hari
Breiðablik mætir Val í úrslitaleiknum í Lengjubikar kvenna í knattspyrnu á skírdag en Blikakonur lögðu Þór/KA að velli eftir vítaspyrnukeppni í Boganum í gærkvöld.

Breiðablik mætir Val í úrslitaleiknum í Lengjubikar kvenna í knattspyrnu á skírdag en Blikakonur lögðu Þór/KA að velli eftir vítaspyrnukeppni í Boganum í gærkvöld. Leikur liðanna endaði 3:3 eftir mikla dramatík í lokin en Kópavogsliðið hafði betur í vítaspyrnukeppni, 4:3, þar sem Áslaug Munda Gunnlaugsdóttir tryggði sigurinn með síðustu spyrnunni. Lára Kristín Pedersen virtist hafa tryggt Þór/KA sigur, 3:2, með marki á síðustu mínútu leiksins en norðankonur gerðu sjálfsmark í kjölfarið. vs@mbl.is