Farinn Tindastólsmenn leita að þjálfara eftir að Israel Martin hætti.
Farinn Tindastólsmenn leita að þjálfara eftir að Israel Martin hætti. — Morgunblaðið/Hari
Israel Martin hefur verið leystur frá störfum sem þjálfari karlaliðs Tindastóls í körfuknattleik. Frá þessu var greint í gærkvöldi og sagði í tilkynningu frá Tindastóli að samkomulag hefði náðst í mestu vinsemd um starfslokin.

Martin hefur þjálfað Tindastólsliðið undanfarin tvö ár og stýrði liði Sauðkrækinga m.a. til sigurs í bikarkeppninni fyrir rúmu ári. Tindastóll féll úr keppni í átta liða úrslitum Íslandsmótsins fyrir skömmu eftir að hafa tapað oddaleik fyrir Þór úr Þorlákshöfn. iben@mbl.is