Jón Þröstur Jónsson
Jón Þröstur Jónsson
Rósa Margrét Tryggvadóttir rosamargrett@gmail.com Enn hefur ekkert spurst til Jóns Þrastar Jónssonar sem hvarf sporlaust í Dublin á Írlandi en síðast sást til hans rétt fyrir hádegi 9. febrúar síðastliðinn.

Rósa Margrét Tryggvadóttir

rosamargrett@gmail.com

Enn hefur ekkert spurst til Jóns Þrastar Jónssonar sem hvarf sporlaust í Dublin á Írlandi en síðast sást til hans rétt fyrir hádegi 9. febrúar síðastliðinn.

Davíð Karl Wiium, bróðir Jóns, segir í samtali við Morgunblaðið að það sé lítið sem fjölskyldan geti gert annað en að halda áfram að minna á málið. „Við erum bara í því að reyna að halda póstinum gangandi. Það vita allir af þessu úti. Það er eiginlega enginn sem hefur ekki heyrt um þetta. En það er voða lítið sem hægt er að gera eins og er,“ segir Davíð. Hann segir að fjölskyldan hafi reynt eftir bestu getu að skiptast á að fara út til Írlands. Davíð hafi þó þurft að einblína á nám sitt upp á síðkastið en hann kláraði síðasta lokaprófið í gær. Þá stefnir hann að því að fljúga til Írlands í dag til að taka við af systur sinni sem er nýkomin heim frá Dublin. Hann segist stefna á að nýta tímann vel úti og vill reyna að komast í fjölmiðla til að dreifa upplýsingunum sem víðast. Þetta telur hann vera það mikilvægasta sem hægt sé að gera í augnablikinu. Jafnframt stefnir Davíð á að funda með írsku lögreglunni á miðvikudaginn og reiknar með að fá þá meiri upplýsingar um hver staða rannsóknarinnar sé. „Málið er opið hjá þeim en það er lítið hægt að gera ef það er ekkert til að vinna með,“ segir Davíð.

Hann segir að ýmsar tilgátur séu á sveimi um hvað hafi orðið um Jón en skiptar skoðanir séu á því hvort hann hafi yfirgefið landið.

„Þetta er allt jafn líklegt og ólíklegt fyrir mér. Hann var ekki með vegabréf eða neitt svo maður veit ekki hversu langt maður kemst án þess. Það þarf að tékka sig inn sama hvort maður er innanlands eða utanlands. Maður þarf í flestum tilfellum að hafa eitthvað til þess að staðfesta hver maður sé. En, eins og ég segi, þá veit maður ekkert.“