Gleði Heiðursfélaginn fyrir miðju.
Gleði Heiðursfélaginn fyrir miðju.
Bassaleikarinn Róbert Þórhallsson var við setningu Blúshátíðar útnefndur heiðursfélagi Blúsfélags Reykjavíkur. „Róbert er einn af okkar allra bestu og eftirsóttustu rafbassaleikurum.
Bassaleikarinn Róbert Þórhallsson var við setningu Blúshátíðar útnefndur heiðursfélagi Blúsfélags Reykjavíkur. „Róbert er einn af okkar allra bestu og eftirsóttustu rafbassaleikurum. Hann hefur verið órjúfanlegur hluti íslenska blússamfélagsins um árabil og hefur meðal annars spilað með húsbandinu, Blue Ice Band, á hverri einustu Blúshátíð frá árinu 2006. Þar hefur hann spilað með öllum erlendu stórstjörnunum sem hafa komið fram á hátíðinni og stjórnað samspilinu af smekkvísi og fagmennsku,“ segir í tilkynningu. Allar nánari upplýsingar um hátíð ársins í ár eru á vefnum blues.is en miðar á hátíðina eru seldir á vefnum midi.is.