Helgi Bjarnason helgi@mbl.is Veiðifélag Laxár í Dölum hyggst lengja uppeldis- og veiðisvæði árinnar á Laxárdal með því að láta gera fiskveg fram hjá Sólheimafossi.

Helgi Bjarnason

helgi@mbl.is

Veiðifélag Laxár í Dölum hyggst lengja uppeldis- og veiðisvæði árinnar á Laxárdal með því að láta gera fiskveg fram hjá Sólheimafossi. Reiknað er með að 6 kílómetrar verði fiskgengir til viðbótar þeim 25 kílómetrum sem lax gengur nú á.

Sveitarstjórn Dalabyggðar hefur samþykkt framkvæmdaleyfi fyrir gerð laxastiga til hliðar við Sólheimafoss. Fiskistofa hafði áður veitt jákvæða umsögn um framkvæmdina. Þar er lögð áhersla á að gengið verði snyrtilega frá svæðinu að framkvæmdum loknum.

Hægt að bæta við einni stöng

Vífill Oddsson verkfræðingur hefur hannað laxastiga. Telur hann heppilegar aðstæður til að fleyga fiskveg í klöppina norðan við fossinn. Kostnaður við það og vegagerð er áætlaður rúmar 8 milljónir kr.

Í greinargerð fiskifræðings Hafrannsóknastofnunar er gert ráð fyrir að framleiðslugeta Laxár aukist um 15-20%, þegar viðbótin verður tilbúin. Margir veiðistaðir eru einnig á þessu svæði og því talið mögulegt að fjölga stöngum í Laxá um að minnsta kosti eina, nái lax að nýta þetta svæði.

Liðlega 1.200 laxar veiddust í Laxá í Dölum á síðasta ári, á 6 stangir. Veiðin sveiflast talsvert milli ára en liðlega þúsund laxar veiðast þar á ári að meðaltali á áratug.