Veiðar Haraldur hefur mikla trú á tilraunaverkefninu í Óman.
Veiðar Haraldur hefur mikla trú á tilraunaverkefninu í Óman. — Morgunblaðið/Árni Sæberg
Í byrjun þessa árs hélt togarinn Victoria til tilraunaveiða á Arabíuhafi, innan lögsögu Óman. Er það í fyrsta sinn frá árinu 1992 sem togveiðar eru stundaðar á þessu svæði, að undanskildum stuttum tíma upp úr aldamótum.

Í byrjun þessa árs hélt togarinn Victoria til tilraunaveiða á Arabíuhafi, innan lögsögu Óman. Er það í fyrsta sinn frá árinu 1992 sem togveiðar eru stundaðar á þessu svæði, að undanskildum stuttum tíma upp úr aldamótum. Að þessu sinni eru veiðarnar stundaðar á grundvelli ákvörðunar yfirvalda í Óman sem kanna nú möguleikann á því að nýta að nýju hin gjöfulu fiskimið innan 200 mílna lögsögu landsins. Til þess að hefja tilraunaveiðarnar gekk fjárfestingarsjóður í eigu soldánsins í Óman til samninga við Harald Reyni Jónsson, sem oftast er kenndur við Úthafsskip, um að sinna veiðunum fyrsta árið. Varð það til þess að skip hans, Victoria, stundar nú veiðar á þessum slóðum undir stjórn tveggja íslenskra skipstjóra. Verkefnið er ekki aðeins að sinna veiðum og kortleggja fiskistofnana sem þarna eru heldur einnig að safna upplýsingum um hafsbotninn. Í samtali við 200 mílur, sérblað um sjávarútveg sem fylgir Morgunblaðinu í dag, segir Haraldur að yfirvöld í Óman standi frammi fyrir miklu tækifæri varðandi frekari veiðar á komandi árum. ses@mbl.is