Barátta Stjörnumaðurinn Hlynur Bæringsson reynir að verja Sigurkarli Róberti Jóhannessyni leiðina á körfunni. Sigurkarl skoraði 5 stig.
Barátta Stjörnumaðurinn Hlynur Bæringsson reynir að verja Sigurkarli Róberti Jóhannessyni leiðina á körfunni. Sigurkarl skoraði 5 stig. — Morgunblaðið/Hari
[ Smellið til að sjá stærri mynd ]
Í Breiðholti Jóhann Ingi Hafþórsson johanningi@mbl.is Úrslitin í viðureign Stjörnunnar og ÍR í undanúrslitum Íslandsmóts karla í körfubolta ráðast í oddaleik í Garðabænum á fimmtudaginn kemur.

Í Breiðholti

Jóhann Ingi Hafþórsson

johanningi@mbl.is

Úrslitin í viðureign Stjörnunnar og ÍR í undanúrslitum Íslandsmóts karla í körfubolta ráðast í oddaleik í Garðabænum á fimmtudaginn kemur. Stjarnan vann sterkan 90:75-sigur í Breiðholtinu í gær og jafnaði í 2:2 í einvíginu.

Stjarnan skoraði aðeins 62 stig á heimavelli í þriðja leik liðanna og var allt annað að sjá sóknarleik Stjörnumanna í gær. Stærsta ástæða þess var landsliðsmaðurinn Ægir Þór Steinarsson, en hann átti magnaðan leik. Ægir fór fyrir sínum mönnum og skoraði 34 stig, tók 7 fráköst og gaf 5 stoðsendingar. Það var ljóst frá fyrstu mínútu að Ægir hafði engan áhuga á að fara í sumarfrí og skoraði hann góða þrista á milli þess sem hann prjónaði sig í gegnum vörn ÍR og skoraði. Ægir var kominn með 17 stig snemma í öðrum leikhluta og bætti hann hægt og örugglega við út allan leikinn.

ÍR-ingar yfirspenntir

ÍR hefði tryggt sér sæti í úrslitum með sigri í gær og var andrúmsloftið í Breiðholtinu rafmagnað. Húsið var troðfullt tæpum klukkutíma fyrir leik og var ljóst að leiksins hafði verið beðið með eftirvæntingu. Það jók pressuna á ÍR og virtust leikmenn liðsins yfirspenntir í byrjun leiks. Þeir brutu klaufalega af sér og hittu ekki úr skotum sem venjulega fara niður.

Með góðum leik Ægis náði Stjarnan snemma tíu stiga forskoti og var ÍR ekki sérstaklega líklegt til að jafna eftir það, þrátt fyrir nokkur álitleg áhlaup í seinni hálfleik. Stjarnan er einfaldlega of sterk til að láta slíkt forskot af hendi.

Einbeitingin ekki á körfubolta

Mótlætið fór illa í nokkra leikmenn ÍR og þá sérstaklega Kevin Capers, sem er kominn með slæmt orðspor á sig hér á landi. Hann er snöggur að einbeita sér að einhverju allt öðru en körfubolta þegar á móti blæs. Sigurður Gunnar Þorsteinsson var greinilega orðinn þreyttur á Capers, því oftar en einu sinni þurfti Sigurður að draga Bandaríkjamanninn í burtu frá dómurunum og skamma hann. Þetta verður Capers að laga því hann er mjög góður í körfubolta og töluvert minna góður í að láta dómarana skipta um skoðun.

Stjörnumenn létu ekki veiða sig í sömu gildru og í síðasta leik þegar ÍR náði að láta Stjörnuna spila sinn leik og úr varð fætingur. Stjörnumenn gerðu vel í að einbeita sér að leiknum og þá geta fá lið stoppað deildar- og bikarmeistarana.

Þar sem ÍR-ingar misstu af tækifærinu til að komast áfram með sigri á heimavelli, er Stjarnan líklegri aðilinn í oddaleiknum. Það er ólíklegt að Stjarnan leyfi ÍR-ingum að komast upp með svipaðan leik á sínum heimavelli og síðast. Borche Ilievski er hins vegar afar fær þjálfari og verður áhugavert að sjá hvað hann og ÍR-ingarnir hans koma með í Garðabæinn þegar allt er undir.

ÍR – Stjarnan 75:90

Hertz-hellirinn, undanúrslit karla, fjórði leikur, mánudag 15. apríl 2019.

Gangur leiksins : 3:2, 7:8, 14:17, 16:26 , 18:33, 24:35, 33:45, 36:48 , 44:48, 44:58, 53:63, 57:65 , 59:69, 66:76, 70:82, 75:90 .

ÍR : Kevin Capers 21/5 fráköst, Gerald Robinson 21/17 fráköst, Matthías Orri Sigurðarson 15, Sigurður Gunnar Þorsteinsson 9/11 fráköst, Sigurkarl Róbert Jóhannesson 5, Sæþór Elmar Kristjánsson 4.

Fráköst : 26 í vörn, 11 í sókn.

Stjarnan : Ægir Þór Steinarsson 34/7 fráköst/5 stoðsendingar, Brandon Rozzell 21/7 fráköst, Hlynur Elías Bæringsson 9/8 fráköst, Tómas Þórður Hilmarsson 9, Antti Kanervo 6, Filip Kramer 5/8 fráköst, Collin Anthony Pryor 3/4 fráköst, Arnþór Freyr Guðmundsson 3.

Fráköst : 31 í vörn, 11 í sókn.

Dómarar : Sigmundur Már Herbertsson, Rögnvaldur Hreiðarsson, Jóhannes Páll Friðriksson.

Áhorfendur : 1.185.

*Staðan er jöfn, 2:2.