Átta Ómar Ingi Magnússon braust hvað eftir annað í gegnum vörn heimamanna í Skopje og hér skorar hann eitt markanna í leiknum í fyrrakvöld.
Átta Ómar Ingi Magnússon braust hvað eftir annað í gegnum vörn heimamanna í Skopje og hér skorar hann eitt markanna í leiknum í fyrrakvöld. — Ljósmynd/Robert Spasovski
[ Smellið til að sjá stærri mynd ]
Handbolti Sindri Sverrisson sindris@mbl.is „Þetta var í mínum huga próf. Karakterspróf til að sýna úr hverju maður er gerður,“ segir Ómar Ingi Magnússon eftir hálfgerða rússíbanareið sína með íslenska landsliðinu í leikjunum mikilvægu við Norður-Makedóníu í undankeppni EM.

Handbolti

Sindri Sverrisson

sindris@mbl.is

„Þetta var í mínum huga próf. Karakterspróf til að sýna úr hverju maður er gerður,“ segir Ómar Ingi Magnússon eftir hálfgerða rússíbanareið sína með íslenska landsliðinu í leikjunum mikilvægu við Norður-Makedóníu í undankeppni EM.

Ómar gerði afdrifarík mistök í lok fyrri leiksins, sem Ísland tapaði 34:33 í Laugardalshöll, en var svo besti maður liðsins í 24:24-jafnteflinu í Skopje í fyrrakvöld þar sem hann skoraði 8 mörk. Þessi úrslit þýða að liðin eru jöfn að stigum í 3. riðli og möguleikinn á að enda í efsta sæti riðilsins orðinn afar lítill, því innbyrðis úrslit skila Norður-Makedóníu ofar. Undankeppninni lýkur með leikjum 12. og 16. júní þegar Ísland mætir Grikkjum á útivelli en Tyrkjum á heimavelli, akkúrat öfugt við Makedóníumenn. Tvö efstu liðin komast áfram á EM og raunar komast lið með bestan árangur í 3. sæti í fjórum af átta undanriðlum einnig á EM. Mikið þarf því að ganga á til að Ísland komist ekki á mótið en það væri liðinu dýrmætt að ná efsta sæti riðilsins og komast þannig í 2. styrkleikaflokk áður en dregið verður í riðla fyrir EM. Nú er sú von lítil.

„Auðvitað væri það mikilvægt fyrir okkur. En við vildum líka bara vinna til að bæta okkur áfram sem lið, þroskast og dafna. Við fengum eitt stig út úr þessum leikjum en maður hefði viljað meira og mér fannst við spila að mörgu leyti vel. Í fyrri leiknum var sóknin mjög góð en svo gerðist í lokin bara það sem gerðist, og við töpuðum. Í seinni leiknum fannst mér við líka spila flottan leik, sóknin var fín þó að við kláruðum ekki færin alveg nógu vel, og varnarleikurinn var mjög flottur auk þess sem markverðirnir gerðu vel. Mér fannst því margt jákvætt í þessu og við spila hörkugóðan bolta þó að við fengjum bara eitt stig,“ segir Ómar Ingi.

Ætti að snúa sér að öðru ef að maður léti svona sitja í sér

Selfyssingurinn fékk dæmd á sig skref undir lok fyrri leiksins við N-Makedóníu, sendi boltann frá sér og var þá sýnt rauða spjaldið fyrir töf auk þess sem gestirnir fengu vítakast. Mistök á ögurstundu vekja jafnan mun meiri athygli en þegar þau verða í miðjum leik, en það segir sitt um skapgerð þessa 22 ára leikmanns hvernig hann vann úr málinu:

„Ég eiginlega trúði þessu ekki í fyrstu. Það var algjör klaufaskapur að fá dæmd á sig þessi skref, en svo var dæmt rautt og víti og það er kannski matsatriði hvort að það var réttur dómur. En svona var þetta bara. Þetta var í mínum huga bara próf. Karakterspróf til að sýna úr hverju maður er gerður. Það var annað hvort að rífa sig í gang, halda áfram, eða vorkenna sér og láta þetta draga mann niður. Ég held að hið síðarnefnda sé voðalega sjaldan rétta svarið.“ Svekkelsið í Höllinni varð honum því ákveðin hvatning í Skopje:

„Þetta var ágætis leikur í Höllinni en ég vissi samt að ég ætti meira inni, líka áður en kom að þessari lokasókn, og ég nýtti þá sénsa í seinni leiknum. Það var vissulega hvatning fyrir mig að nýta það sem gerðist í stað þess að láta þetta skemma fyrir manni. Svona eru íþróttir bara. Maður getur ekki haft stjórn á öllu og þegar svona gerist þá þarf bara að setja brjóstkassann fram og hökuna upp. Ef að maður léti svona sitja í sér þá ætti maður kannski frekar að snúa sér að einhverju öðru. Það þarf að taka þessu eins og öðru.“

Vill fullkomna frábæra þrennu

Ómar Ingi hefur verið í lykilhlutverki hjá Aalborg í Danmörku í vetur á sinni fyrstu leiktíð með liðinu eftir komu frá grönnunum í Aarhus þar sem hann hóf atvinnumannsferilinn haustið 2016. Hann hefur nú þegar fagnað deildarmeistaratitli og bikarmeistaratitli, en úrslitakeppni dönsku úrvalsdeildarinnar hefst svo annað kvöld.

„Mér hefur gengið vel heilt yfir, sem og liðinu sem er auðvitað mikilvægast. Við erum búnir að vinna deildina og bikarinn, en þegar maður hugsaði málið fyrir tímabilið þá var það þannig að ef maður myndi vinna einhvern bikar þá vildi maður vinna þann síðasta. Mig langar að taka hann,“ segir Ómar Ingi. Aalborg byrjar á leik við Arnar Birki Hálfdánsson og félaga í SönderjyskE en liðið er einnig í riðli með Holstebro og Skjern. Sem deildarmeistari byrjar Aalborg með 2 stig, Holstebro byrjar með 1 en hin tvö liðin 0, og eftir tvöfalda umferð komast svo tvö þessara liða áfram í undanúrslit.

„Þetta eru allt hörkulið. Við byrjum vissulega með tvö stig en nú eru öll liðin hungruð í að sýna að þau geti unnið okkur,“ segir Ómar Ingi sem verður að öllum líkindum áfram hjá Aalborg næsta vetur en samningur hans við félagið gildir fram á sumarið 2020.